Hannibal hlaut Orrabikarinn

  • 14. júlí 2026
  • Fréttir

Gísli Gíslason og Mette Mannseth taka við Orrabikarnum frá Önnu Berglindi Indriðadóttur Mynd: Freydís Bergsdóttir

Dómsorð stóðhestanna sem hlutu fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi á Landsmóti

Tíu hestar hlutu fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi á Landsmót hestamanna 2026. Hannibal frá Þúfum stóð efstur stóðhesta með fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi.

Við hátíðlega verðlaunaafhendingu leiddu ræktendur og eigendur Hannibals, Mette Mannseth og Gísli Gíslason, afkvæmahóp hans inn á völlinn og veittu viðtöku Orrabikarnum, sem veittur er þeim stóðhesti sem stendur efstur á Landsmóti með fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi. Orrabikarinn er gefinn til minningar um hinn landsþekkta stóðhest Orra frá Þúfu, sem markaði djúp spor í íslenskri hrossarækt og átti eftir að hafa víðtæk áhrif á ræktun íslenska hestsins bæði hér á landi og erlendis. Það var Anna Berglind Indriðadóttir frá Þúfu í Landeyjum sem afhenti bikarinn fyrir hönd fjölskyldunnar.

Hér fyrir neðan er röðin og dómsorð þeirra stóðhesta sem hlutu 1 verðlaun fyrir afkvæmi á Landsmótinu.

Hannibal frá Þúfum – 136 stig

„Hannibal frá Þúfum gefur hross í rúmu meðallagi að stærð, þau eru sviphrein með skarpt höfuð. Hálsinn er reistur við háar og langar herðar, hann er hátt settur, grannur og vel lagaður. Bakið er afar burðargott og lendin öflug. Afkvæmin eru vel framhá, sívalvaxin og hlutfallarétt. Fætur hafa öflugar sinar, sinaskil mættu vera meiri en hófar eru efnismiklir. Prúðleiki er í rúmu meðallagi. Hannibal gefur auðtamin hross og kemur hér fram með ungan afkvæmahóp. Afkvæmin búa yfir háum og rúmum hreyfingum. Þau eru afar jafnvægisgóð, mjúk og taktörugg á tölti, hágeng upp af feti. Brokkið er takthreint og svifgott. Greiða stökkið er afar gott; ferðmikið og mjúkt, hæga stökkið takthreint og jafnvægisgott. Hannibal gefur hross með úrvals yfirlínu sem eru afar jafnvægisgóð á gangi og búa þau yfir frábærri mýkt og útgeislun. Hannibal hlýtur fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og fyrsta sætið.“

Skarpur frá Kýrholti – 134 stig

„Skarpur frá Kýrholti gefur stór og myndarleg hross. Höfuð er svipgott með vel borin eyru en stundum krummanef. Hálsinn er reistur og hvelfdur við háar herðar en mætti stundum vera hærra settur og fínlegri. Bakið er vöðvafyllt og breitt og samræmi frábært; þau eru fótahá og sívalvaxin. Fætur eru sterkir með góð sinaskil og hófar eru vel lagaðir með hvelfdan botn. Prúðleiki er ágætur. Skarpur gefur afkvæmi með mikla mýkt í gangi, skrefstærð og aðgengilegan samstarfsvilja. Afkvæmin eru takthrein og hágeng á tölti og brokki og afburða tölthross eru á meðal afkvæmanna. Þau eru takthrein og hvelfd á stökki og fetið er takhreint og skrefagott. Skarpur gefur stólpamyndarleg hross með mikla skrefstærð og fótaburð. Hann hlýtur fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og annað sætið.“

Veigar frá Skipaskaga – 131 stig

„Veigar gefur afar stór og virkjamikil hross. Höfuð hefur vel opin augu og fínleg eyru en mætti vera léttara. Hálsinn er afar reistur, vel settur og hvelfdur, bakið er burðarmikið og lendin öflug en mætti vera jafnari. Afkvæmin hafa frábært samræmi; afar há að framan, hlutfallarétt og fótahá. Fætur hafa öfluga liði en sinaskil mættu meiri. Hófar eru úrvalsgóðir og prúðleiki er í rúmu meðallagi. Veigar gefur mjúk og skrefmikil ganghross, flest klárhross enn sem komið er. Töltið er úrvalsgott; mjúkt og takthreint með miklum fótaburði, brokkið er skrefagott en oft sviflítið. Greiða stökk er rúmt og teygjugott og hæga stökkið jafnvægisgott. Fetið er takthreint en ekki skrefmikið. Veigar gefur viljug og þjál hross, þau eru framhá og fasmikil með úrvals tölti, hann hlýtur fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og þriðja sætið.“

Pensill frá Hvolsvelli – 129 stig

„Pensill frá Hvolsvelli gefur hross í rúmu meðallagi að stærð. Höfuð er fremur svipgott og eyrun oft vel borin. Hálsinn er grannur með langa og mjúka yfirlínu, bak og lend er vel vöðvafyllt og afkvæmin eru falleg á bolinn; sívöl, jafnbyggð og fótahá. Fætur eru prúðir með öfluga liði, sinaskil eru í meðallagi. Hófar eru efnismiklir en hælstoðir mættu veigameiri. Pensill gefur þjál og viljug hross, yfirleitt alhliðageng. Töltið er rúmt, mjúkt og skrefagott en mætti vera lyftingarmeira á hægu. Brokkið er rúmt og öruggt, afkvæmin eru jafnvægisgóð á skeiði en gætu verið svifmeiri. Greiða stökkið er mjúkt og ferðgott, hæga stökkið takthreint. Fetið er um meðallag. Pensill gefur faxprúð og falleg, mjúk alhliða ganghross, hann hlýtur fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og fjórða sætið.“

Útherji frá Blesastöðum 1A – 121 stig

„Útherji frá Blesastöðum 1A gefur hross í meðallagi að stærð. Höfuð er skarpt með vel borin eyru. Hálsinn er reistur og mjúkur, baklínan er sterk og lendin öflug. Afkvæmin eru jafnvægisgóð, sívalvaxin og fótahá. Fætur eru þurrir og hófar eru afar efnismiklir og vel lagaðir. Prúðleiki er í tæpu meðallagi. Útherji gefur léttstíg og hágeng hross sem eru fljót að ná jafnvægi á tölti. Afkvæmin eru yfirleitt klárhross með tölti. Töltið er takthreint og rúmt og brokkið er skrefmikið og svifgott. Þau stökkva prýðilega á ferðinni og eru jafnvægisgóð á hægu stökki. Útherji gefur léttleikandi hross með hressilega framgöngu og glaðlegt yfirbragð, þau eru þjál og viljug og hlýtur hann fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og fimmta sætið.“

Safír frá Mosfellsbæ – 121 stig

„Safír frá Mosfellsbæ gefur hross í rúmu meðallagi að stærð með skarpt og þurrt höfuð. Hálsinn er langur og klipinn í kverk með góða yfirlínu. Bakið er breitt og vöðvafyllt, baklínan misjöfn og lendin mætti vera veigameiri. Afkvæmin eru afar léttbyggð og sívalvaxin, fætur eru þurrir og réttir að aftan en sinaskil eru ekki mikil. Hófar eru efnisgóðir og prúðleiki er með ágætum. Safír gefur yfirleitt klárhross sem búa yfir háum hreyfingum, framgripi og góðri skreflengd á tölti og brokki, brokkið er fjaðrandi. Stökkið er svifgott og fetið takthreint og skrefagott. Safír frá Mosfellsbæ gefur fínleg og þurrbyggð léttleikahross, hann hlýtur fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og sjötta sætið.“

Kjuði frá Dýrfinnustöðum – 120 stig

„Kjuði frá Dýrfinnustöðum gefur hross í rúmu meðallagi að stærð. Höfuð er svipgott, hálsinn reistur, hátt settur og vel aðgreindur frá bógum. Bak og lend er yfirleitt sterklegt og afkvæmin eru jafnvægisgóð. Fætur eru grannir en réttleiki góður, hófar mættu vera efnistraustari og hvelfdari. Prúðleiki er í tæpu meðallagi. Kjuði gefur sporlétt alhliðageng hross með eðlisfótaburð, þau eru takthrein og skrefmikil á tölti og brokki og einkar jafnvægisgóð á skeiði. Kjuði gefur viljug og vakandi hross með alhliða gæðingskosti, hann hlýtur fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og sjöunda sætið.“

Rauðskeggur frá Kjarnholtum I – 119 stig

„Rauðskeggur frá Kjarnholtum I gefur stór og gerðarleg hross. Þau eru með vel opin augu en stundum merarskál. Hálsinn er reistur við háar herðar og skásetta bóga, baklínan er góð og lendin öflug. Afkvæmin eru jafnan fótahá og bollétt, fætur eru þurrir en sinaskil mættu vera meiri, hófar eru all góðir en prúðleiki er fremur rýr. Rauðskeggur gefur geðprúð alhliða ganghross og úrvals gæðingar eru á meðal afkvæmanna. Þau eru hreingeng og skrefmikil með góðan fótaburð, yfirleitt skrokkmjúk á tölti. Skeiðið er skrefmikið og takthreint, þau eru jafnvægisgóð á hægu stökki en ekki svifmikil. Greiða stökkið er rúmt og teygjugott. Rauðskeggur gefur fótahá og reist hross sem fara fallega í reið með rúmum og háum hreyfingum, hann hlýtur fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og áttunda sætið.“

Vökull frá Efri-Brú – 118 stig

„Vökull frá Efri-Brú gefur afar stór og myndarleg hross. Höfuð er gerðalegt með vel opin augu, ekki fínlegt. Hálsinn er hvelfdur við skásetta bóga, baklínan er há en bak og lend mætti stundum vera vöðvafylltara. Afkvæmin hafa úrvals samræmi; mikla fótahæð, eru framhá og langvaxin. Fætur eru sterklegir en sinaskil eru í tæpu meðallagi. Hófar eru efnismikilir og hvelfdir og prúðleiki er í rúmu meðallagi. Afkvæmin eru yfirveguð og traust í lund, sum mættu vera snarpari. Flest eru þau klárhross með tölti, þó eru vel vökur hross á meðal afkvæmanna. Þau eru skrefmikil og hágeng á tölti og brokki, takthrein en sum mættu vera fimari á töltinu. Greiða stökkið er teygjugott og hæga stökkið takthreint og svifgott, fetið er síst. Vökull gefur stólpamyndarleg og skrefmikil hross sem sópar að í reið og hlýtur hann fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og níunda sætið.“

Dofri frá Sauðárkróki – 114 stig, aðaleinkunn án skeiðs 120

„Dofri frá Sauðárkróki gefur hross í rúmu meðallagi að stærð. Þau er skarpleit með langan, grannan háls og góða yfirlínu en hálsinn mætti vera hærra settur. Bak og lend er prýðilega vöðvafyllt og afkvæmin er fótahá og myndarleg. Dofri gefur fyrst og fremst klárhross með tölti, þau er skrokkmjúk og rúm á tölti og búa yfir góðum fótaburði. Þau eru skrefmikil á brokki en mættu stundum vera svifmeiri, fetið er stöðugt og takthreint. Dofri gefur fótahá og myndarleg klárhross með tölti, mjúk og geðprúð og hlýtur fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og tíunda sætið.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link