Valdís Mist og Ófeigur í fyrsta sæti að lokinni forkeppni í T4
Valdís Mist og Ófeigur. Ljósmynd: Gunnhildur Ýrr/Draumfaramyndataka
Dagskrá Íslandsmóts barna og unglinga, sem fram fer á Brávöllum á Selfossi þessa dagana, hélt áfram nú í morgun. Fyrsta keppnisgrein dagsins var slaktaumatölt (T4) í barnaflokki.
Alls voru þau 21 talsins börnin sem mættu til keppni í slaktaumatölti. Valdís Mist Eyjólfsdóttir og Ófeigur frá Þingnesi hlutu hæstu einkunnina með 7,50 í öðru sæti er Helga Rún Sigurðardóttir á Morgunroða frá Sauðárkróki og í þriðja sæti er Oliver Sirén Matthíasson og Herjann frá Eylandi með 6,90. Þau Hrafnar Freyr Leósson á Heiðari frá Álfhólum og Eyvör Sveinbjörnsdóttir á Hag frá Hofi á Höfðaströnd tryggði sér þá líka þátttöku rétt í A-úrslitum og knapar í 6.-10. sæti keppa til B-úrslita.
Niðurstöður í T4 barnaflokki
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Valdís Mist Eyjólfsdóttir / Ófeigur frá Þingnesi | 7,50 |
| 2 | Helga Rún Sigurðardóttir / Morgunroði frá Sauðárkróki | 7,40 |
| 3 | Oliver Sirén Matthíasson / Herjann frá Eylandi | 6,90 |
| 4 | Hrafnar Freyr Leósson / Heiðar frá Álfhólum | 6,70 |
| 5 | Eyvör Sveinbjörnsdóttir / Hagur frá Hofi á Höfðaströnd | 6,67 |
| 6 | Embla Sirén Matthíasdóttir / Glæsir frá Traðarholti | 6,50 |
| 7 | Eva Hrönn Ásmundsdóttir / Spyrna frá Strandarhöfði | 6,43 |
| 8 | Svala Björk Hlynsdóttir / Eindís frá Auðsholtshjáleigu | 6,40 |
| 9 | Þorgeir Nói Jóhannsson / Hnokki frá Áslandi | 6,33 |
| 10 | Aron Einar Ólafsson / Hrafnar frá Hvoli | 6,30 |
| 11 | Elísa Rún Karlsdóttir / Jarl frá Hrafnagili | 6,27 |
| 12 | Guðrún Lára Davíðsdóttir / Glæsir frá Akranesi | 6,17 |
| 13 | Móeiður Valgarðsdóttir / Heljar frá Fákshólum | 6,03 |
| 14 | Helga Rún Sigurðardóttir / Seifur frá Brekkubæ | 5,97 |
| 15 | Elsa Guðbjörg Árnadóttir / Hallur frá Naustum | 5,90 |
| 16 | Sigrún Freyja Einarsdóttir / Silfurtoppur frá Kópavogi | 5,83 |
| 17 | Sigurey María Eyjalínardóttir / Sigurrós frá Akranesi | 5,77 |
| 18 | Eva Hrönn Ásmundsdóttir / Rafn frá Melabergi | 5,67 |
| 19 | Hrafnar Freyr Leósson / Tindur frá Álfhólum | 5,47 |
| 20 | Katla Dís Hannesdóttir / Hera frá Tungu | 5,33 |
| 21 | Magdalena Ísold Andradóttir / Tenór frá Hemlu II | 4,40 |
Hæst dæmdi hestur í heimi
Viktoría leiðir fjórganginn í barnaflokki
Hollaröðun á miðssumarsýningunni