Valdís Mist í tveimur efstu sætum í gæðingatölti
Valdís Mist og Ófeigur í gæðingatölti. Ljósmynd: Gunnhildur Ýrr/Draumfaramyndataka
Dagskrá Íslandsmóts barna og unglinga fer nú fram á félagssvæði Sleipnis á Brávöllum á Selfossi. Í gær fór fram forkeppni í hinum ýmsu keppnisgreinum og áfram skal haldið í dag, klukkan 09:30 byrjar fyrsta keppnisgrein dagsins sem er gæðingaskeið. Hægt er að horfa á mótið í beinni útsendingu á EiðfaxaTV. Dagskrá og niðurstöður eru þá aðgengilegar í snjallforriti HorseDay.
Í gæðingatölti barna sem fram fór í gær er efst Valdís Mist Eyjólfsdóttir á Ófeigi frá Þingnesi með einkunnina 8,68 en hún á einnig næst hæstu einkunnina á Hnotu frá Þingnesi með 8,64. Í þriðja sæti er Oliver Sirén Matthíasson á Gróu frá Þjóðólfshaga 1 með 8,61 í einkunn. Í fjórða sætinu er Helga Rún Sigurðardóttir á Seifi frá Brekkubæ með 8,58.
Niðurstöður gæðingatölt barnaflokki
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Valdís Mist Eyjólfsdóttir / Ófeigur frá Þingnesi | 8,68 |
| 2 | Valdís Mist Eyjólfsdóttir / Hnota frá Þingnesi | 8,64 |
| 3 | Oliver Sirén Matthíasson / Gróa frá Þjóðólfshaga 1 | 8,61 |
| 4 | Helga Rún Sigurðardóttir / Seifur frá Brekkubæ | 8,58 |
| 5-6 | Svala Björk Hlynsdóttir / Sigur frá Auðsholtshjáleigu | 8,56 |
| 5-6 | Guðrún Lára Davíðsdóttir / List frá Sauðárkróki | 8,56 |
| 7 | Aron Einar Ólafsson / Fagur frá Akurprýði | 8,54 |
| 8 | Svala Björk Hlynsdóttir / Bríet frá Auðsholtshjáleigu | 8,52 |
| 9 | Viðar Ingimarsson / Freyr frá Kvistum | 8,52 |
| 10 | Sunna María Játvarðsdóttir / Alfa frá Margrétarhofi | 8,51 |
| 11 | Viktoría Huld Hannesdóttir / Þinur frá Enni | 8,48 |
| 12 | Sigurey María Eyjalínardóttir / Jörp frá Kjarri | 8,48 |
| 13-14 | Helgi Hrafn Sigvaldason / Fagur frá Kvistum | 8,47 |
| 13-14 | Jón Guðmundsson / Rós frá Blönduósi | 8,47 |
| 15 | Embla Sirén Matthíasdóttir / Gróði frá Naustum | 8,46 |
| 16 | Aron Einar Ólafsson / Silfra frá Einhamri | 8,45 |
| 17 | Eva Hrönn Ásmundsdóttir / Rafn frá Melabergi | 8,44 |
| 18 | Dagur Snær Agnarsson / Barón frá Hafnarfirði | 8,43 |
| 19 | Vilhelm Bjartur Eiríksson / Blesi frá Heysholti | 8,43 |
| 20 | Helga Rún Sigurðardóttir / Drottning frá Íbishóli | 8,41 |
| 21 | Katla Dís Hannesdóttir / Sigurpáll frá Varmalandi | 8,41 |
| 22 | Dagmar Daníelsdóttir / Friðarrós frá Norðurey | 8,37 |
| 23 | Úlfar Logi Gunnarsson / Aspar frá Miklagarði | 8,36 |
| 24 | Þorgeir Nói Jóhannsson / Nína frá Áslandi | 8,35 |
| 25 | Guðrún Lára Davíðsdóttir / Hekla frá Eylandi | 8,32 |
| 26 | Sigursteinn Ingi Jóhannsson / Hrynjandi frá Geysisholti | 8,32 |
| 27 | Aldís Emilía Magnúsdóttir / Elja frá Birkihlíð | 8,31 |
| 28 | Ómar Björn Valdimarsson / Afródíta frá Álfhólum | 8,30 |
| 29 | Hrafnar Freyr Leósson / Heiðar frá Álfhólum | 8,30 |
| 30 | Móeiður Valgarðsdóttir / Heljar frá Fákshólum | 8,26 |
| 31 | Steinar Kári Guðmarsson / Veisla frá Sandhólaferju | 8,15 |
| 32 | Harpa Rún Sveinbjörnsdóttir / Björt frá Barkarstöðum | 8,13 |
| 33 | Harpa Rún Sveinbjörnsdóttir / Straumur frá Víðinesi 1 | 8,12 |
| 34 | Margrét Sigursteinsdóttir / Aríel frá Skógarkoti | 8,10 |
| 35 | Ása María Hansen / Díar frá Neðra-Seli | 8,10 |
| 36 | Sara Margrét Holaker Hauksdóttir / Ósk frá Skáney | 8,06 |
Hæst dæmdi hestur í heimi