Hilmir Páll og Heiður á toppnum í gæðingatölti unglinga
Hilmir Páll Hannesson og Heiður frá Eystra-Fróðholti Ljósmynd: Gunnhildur Ýrr/Draumfaramyndataka
Dagskrá Íslandsmóts barna og unglinga fer nú fram á félagssvæði Sleipnis á Brávöllum á Selfossi. Í gær fór fram forkeppni í hinum ýmsu keppnisgreinum og áfram skal haldið í dag, klukkan 09:30 byrjar fyrsta keppnisgrein dagsins sem er gæðingaskeið. Hægt er að horfa á mótið í beinni útsendingu á EiðfaxaTV. Dagskrá og niðurstöður eru þá aðgengilegar í snjallforriti HorseDay.
Í gæðingatölti í unglingaflokki er það Hilmir Páll Hannesson á Heiðri frá Eystra-Fróðholti sem hlaut hæstu einkunn í forkeppni, 8,77. Önnur er Kristín Rut Jónsdóttir á Goða frá Garðabæ með 8,72 og í þriðja sætinu er Elísabet Benediktsdóttir á Þór frá Hekluflötum með 8,62 í einkunn. Til A-úrslita keppa einnig þeir Loftur Breki Hauksson á Garúnu frá Austurási með 8,62 og Ragnar Dagur Jóhannsson á Eiðfaxa frá Lækjarbotnum með 8,59 í einkunn.
Niðurstöður gæðingatölt unglinga
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Hilmir Páll Hannesson / Heiður frá Eystra-Fróðholti | 8,77 |
| 2 | Kristín Rut Jónsdóttir / Goði frá Garðabæ | 8,72 |
| 3 | Elísabet Benediktsdóttir / Þór frá Hekluflötum | 8,67 |
| 4 | Loftur Breki Hauksson / Garún frá Austurási | 8,62 |
| 5 | Ragnar Dagur Jóhannsson / Eiðfaxi frá Lækjarbotnum | 8,59 |
| 6 | Apríl Björk Þórisdóttir / Lilja frá Kvistum | 8,58 |
| 7 | Hilmir Páll Hannesson / Grímur frá Skógarási | 8,56 |
| 8 | Fríða Hildur Steinarsdóttir / Hrynjandi frá Hrísdal | 8,54 |
| 9 | Álfheiður Þóra Ágústsdóttir / Auður frá Vestra-Fíflholti | 8,52 |
| 10 | Gabríela Máney Gunnarsdóttir / Bjartur frá Hlemmiskeiði 3 | 8,51 |
| 11 | Súsanna Guðlaug Halldórsdóttir / Heiða frá Skúmsstöðum | 8,51 |
| 12 | Emma Rún Sigurðardóttir / Valíant frá Efra-Langholti | 8,48 |
| 13 | Aron Dyröy Guðmundsson / Sunna frá Rauðalæk | 8,47 |
| 14 | Karólína Ævarr Skúladóttir / Litli brúnn frá Eyrarbakka | 8,46 |
| 15 | Anna Sigríður Erlendsdóttir / Hlynur frá Árbæjarhjáleigu II | 8,44 |
| 16 | Tristan Dagur Þórisson / Garún frá Þjóðólfshaga 1 | 8,39 |
| 17 | Viktor Leifsson / Glaður frá Mykjunesi 2 | 8,37 |
| 18 | Hjördís Halla Þórarinsdóttir / Höfn frá Kagaðarhóli | 8,36 |
| 19 | Greta Berglind Jakobsdóttir / Þokki frá Kolgerði | 8,36 |
| 20 | Sigrún Sunna Reynisdóttir / Iða frá Þúfum | 8,36 |
| 21 | Una Björt Valgarðsdóttir / Eldon frá Varmalandi | 8,33 |
| 22 | Vigdís Björk Sveinbjörnsdóttir / Dimma frá Varmalæk | 8,33 |
| 23 | Helgi Björn Guðjónsson / Silfra frá Syðri-Hömrum 3 | 8,31 |
| 24 | Eydís Klara Kjartansdóttir / Röst frá Eystra-Fróðholti | 8,29 |
| 25 | Björney Anna Aronsdóttir / Hljómur frá Borgarlandi | 8,27 |
| 26 | Ísabella Helga Játvarðsdóttir / Dögun frá Strandarhjáleigu | 8,26 |
| 27 | Ingunn Lilja Gautadóttir / Björt frá Fellskoti | 8,26 |
| 28 | Vigdís Björk Sveinbjörnsdóttir / Úlrik frá Hvergilandi | 8,23 |
| 29 | Elena Ást Einarsdóttir / Sól frá Stokkhólma | 8,22 |
| 30 | Sigríður Fjóla Aradóttir / Baga frá Ytra-Hóli | 8,13 |
| 31 | Svava Marý Þorsteinsdóttir / Skýr frá Syðra-Langholti | 8,11 |
| 32 | Bryndís Axelsdóttir / Þristur frá Kjarrhólum | 8,08 |
| 33 | Súsanna Sóley Steinarsdóttir / Grunnur frá Hólavatni | 8,05 |
| 34 | Hjördís Antonía Andradóttir / Vilborg frá Bjarkarey | 8,02 |
| 35 | Sigurrós Mábil Hjaltested / List frá Hjarðarholti | 7,99 |
| 36 | Hrafndís Alda Jensdóttir / Kráka frá Geirmundarstöðum | 4,10 |
| 37-38 | Hákon Þór Kristinsson / Harður frá Eldborg | 0,00 |
| 37-38 | Svandís Svava Halldórsdóttir / Fleygur frá Snartartungu | 0,00 |
Hæst dæmdi hestur í heimi