Hestahvíslarinn goðsagnakenndi Monty Roberts er látinn

  • 3. ágúst 2026
  • Fréttir
Bandaríski hestamaðurinn og rithöfundurinn Monty Roberts, sem var heimsþekktur fyrir tamningaaðferðir sínar, lést þann 2. ágúst sl., 91 árs að aldri.

Monty Roberts fæddist í Kaliforníu árið 1935 og ólst upp í kringum hesta. Á unglingsárum sínum blöskraði honum þær hörðu og ofbeldisfullu tamningaaðferðir sem þá tíðkuðust, meðal annars hjá föður hans. Hann hóf því snemma að þróa sína eigin nálgun, sem hann kallaði „Join-Up“. Sú aðferð byggir á samskiptum, líkamstjáningu og því að vinna traust og að fá hestinn til þess að koma sjálfviljugur til mannsins í stað þvingana. Hugmyndafræði Roberts, sem oft var kallaður „hestahvíslarinn“, vakti heimsathygli og ruddi brautina fyrir mýkri nálgun í þjálfun hesta um allan heim. Hann gaf út fjölda bóka, þar á meðal metsölubókina The Man Who Listens to Horses.

Hann kom hingað til lands árið 2006 og hélt þá vel heppnaða sýningu í Víðdal í Reykjavík. Í tengslum við þá sýningu birtist við hann viðtal í Morgunblaðinu þann 30. mars árið 2006, þar segir hann m.a. um íslenska hestinn:

„Reyndar er íslenski hesturinn nokkuð sérstakur því vandamálið sem er algengast hjá öðrum kynjum, að fara upp á kerru, hrjáir hann ekkert sérstaklega. Aðalvandinn hér er hins vegar hegðunarvandamál og yfirgangur; að fólk hafi ekki stjórn á þeim. Ég held að það sé vegna stoltsins, þeir vilja ekki láta ráða yfir sér, maðurinn skilur ekki þetta eðli hans og gerir ranga hluti sem hefur það í för með sér að hesturinn ber ekki virðingu fyrir manninum.“

Hægt er að kynna sér nánar um aðferðir Monty á youtube rás hans, með því að smella hér.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link