Elísabet Líf og Dyggur efst unglinga
Elísabet Líf og Dyggur från Stummelbol Ljósmynd: Ásta Björk Friðjónsdóttir
Norðurlandamótið hófst nú í morgun og er í beinni útsendingu á EiðfaxaTV, í dag er keppt í forkeppni í gæðingakeppni.
Það voru unglingarnir sem byrjuðu daginn og þar var einn fulltrúi frá Íslandi á meðal þátttakenda. Það var hún Elísabet Líf Sigvaldadóttir en keppnishestur hennar er Dyggur från Stummelbol sem er 7.vetra gamall og hefur James Faulkner keppt lítillega á honum í Svíþjóð, ungur hestur með ekki ýkja mikla reynslu. Elísabet stóð sig frábærlega og leiðir nú að lokinni forkeppni með 8,48 í einkunn, einungis aukastöfum lægri einnig með 8,48 er Nike Jakobsson á Sleipni frá Ósi sem keppir fyrir hönd Svíþjóðar. Í þriðja sætinu er Rigmor Balle á Leisti frá Hólum með 8,34 frá Danmörku.
A-úrslit í unglingaflokki fara svo fram seinni parinn á fimmtudag. Hægt er að nálgast allar niðurstöður, ráslista og annað á snjallforritinu HorseDay.
| Unglingaflokkur gæðinga | |||
| Forkeppni | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Elísabet Líf Sigvaldadóttir | Dyggur från Stummelbol | 8,480 |
| 2 | Nike Jakobsson | Sleipnir frá Ósi | 8,478 |
| 3 | Rigmor Balle | Leistur frá Hólum | 8,384 |
| 4 | Anette Korhonen | Alísa frá Strandarhjáleigu | 8,378 |
| 5 | Isabella Larsson | Leó från Änghaga | 8,368 |
| 6 | Alice Edvinsson Kareliusson | Riddari frá Hofi | 8,332 |
| 7-8 | Saga Knutsen Eiriksdottir | Ýmir frá Selfossi | 8,326 |
| 7-8 | Hannah Eggen Bragstad | Þorsti frá Ytri-Bægisá I | 8,326 |
| 9 | Sille Emilie Søndergaard | Vespa fra Kringlan | 8,310 |
| 10 | Ellen Smet Jensen | Ferill frá Búðarhóli | 8,186 |
| 11 | Minna Lindberg | Garri från Mörtö | 8,160 |
| 12 | Nathalie Røe-Skavnes | Smári frá Steinnesi | 8,086 |
| 13 | Andreas Lie Sørensen | Djásn frá Arnbjörgum | 7,992 |

Elísabet Líf var dyggilega studd af íslenskum áhorfendum. Ljósmynd: Ásta Björk Friðjónsdóttir
Elísabet Líf og Dyggur efst unglinga
Hæst dæmdi hestur í heimi
Skráning á Áhugamannamót Íslands til miðnættis!