Norðurlandamót Jón Ársæll og Viskusteinn efstir ungmenna

  • 4. ágúst 2026
  • Fréttir

Jón Ársæll Bergmann og Viskusteinn frá Íbishóli eru efstir í B-flokki ungmenna. Ljósmynd: Ljósmynd: Cassandra Laikmets/CLfoto

Fjórir íslenskir knapar tóku þátt í forkeppni í B-flokki ungmenna

Norðurlandamótið hófst nú í morgun og er í beinni útsendingu á EiðfaxaTV, í dag er keppt í forkeppni í gæðingakeppni.

Önnur keppnisgrein dagsins var forkeppni í B-flokki ungmenna. Ísland átti þar fjóra fulltrúa en alls tóku 17 knapar þátt í greininni.

Efstur að lokinni forkeppni er Jón Ársæll Bergmann á Viskusteini frá Íbishóli með einkunnina 8,68, fast á hæla hans fylgir Hekla Rán Hannesdóttir á Tindi frá Árdal með 8,61 í einkunn. Í þriðja sætinu er Elsa Lund Iskov á Þormari frá Neðri-Hrepp með 8,46 í einkunn en þau eru fulltrúar Noregs.

Þau Sara Dís Snorradóttir og Guðmar Hólm Líndal tryggðu sér þátttökurétt í B-úrslitum þar sem þau munu berjast um að komast í A-úrslit og eru þau til alls líkleg. Sara er á Nökkva frá Syðra-Skörðugili og hlutu þau í einkunn 8,28 og þrettánda sætið og Guðmar er á Arthúri frá Baldurshaga og hlutu þeir 8,35 og níunda sætið.

B-úrslit fara fram á morgun, miðvikudag og A-úrslit í fara svo fram seinni parinn á fimmtudag.

Hægt er að nálgast allar niðurstöður, ráslista og annað á snjallforritinu HorseDay.

B flokkur ungmenna
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Jón Ársæll Bergmann Viskusteinn frá Íbishóli 8,684
2 Hekla Rán Hannesdóttir Tindur frá Árdal 8,608
3 Elisa Lund Iskov Þormar frá Neðri-Hrepp 8,464
4 Bianca Söderholm Skálmöld frá Skáney 8,458
5 Gry Kirstine Vestergaard Jensen Neisti frá Lækjarbotnum 8,456
6 Julie Thorsbye Andersen Kolbakur frá Morastöðum 8,452
7 Lowa Walfridsson Seifur från Skälleryd 8,428
8 Hilma Pettersson Laukur frá Varmalæk 8,366
9 Guðmar Hólm Líndal Arthúr frá Baldurshaga 8,354
10 Tilde Astrup Baldi frá Feti 8,334
11 Felicia Wiström Sókrates från Sundabakka 8,288
12 Mina Fidje Hansen Maríus frá Húsavík 8,286
13 Sara Dís Snorradóttir Nökkvi frá Syðra-Skörðugili 8,284
14 Roberta Bøgeblad Larsen Veigur frá Eystri-Hól 8,276
15 Grete Fostervoll Flemmen Assa frá Margrétarhofi 8,272
16 Isabella Juul Petersen Vals fra Nymark 8,242
17 Ester Östberg Bjarmi frá Ketilhúshaga 8,206

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link