Dagur með hrossaræktarráðunaut
Dagur með hrossræktarráðunaut verður haldinn í Topreiter höllinni á Akureyri föstudaginn 17. febrúar nk.
Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur BÍ mun fara yfir helstu atriði sem lögð eru til grundvallar við einkunnagjöf í kynbótadómum bæði hvað varðar byggingu og hæfileika. Sýnd verða nokkur hross og gefst þátttakendum kostur á að gefa þeim einkunnir og bera saman við tölur ráðunautsins.
Þátttökugjald er kr. 4.000.-
Innifalið í þátttökugjaldi er léttur hádegisverður.
Tímasetning: Föstudagur 17. febrúar frá kl. 10:00 – 17:00
Skráning í Búgarði í síma 460-4477 eða á netfangið [email protected].
Síðasti skráningardagur er þriðjudagurinn 14. febrúar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum