Hestaþing Mána framundan
Jóhanna Margrét Snorradóttir og Kubbur frá Læk.
Opið hestaþing Mána verður haldið að Mánagrund 6. og 7. júní nk. Skráning er hafin á Sportfeng en henni lýkur á miðnætti mánudaginn 1. júní að er fram kemur í tilkynningu frá mótanefnd Mána.
„Skráningargjald í gæðingakeppnina er kr. 4000 en kr. 3500 fyrir börn og unglinga.
Boðið verður upp á eftirfarandi flokka:
- A-flokkur gæðina
- A-flokkur gæðinga, áhugamenn (veljið Annað 1. flokkur í Sportfeng)
- B-flokkur gæðinga
- B-flokkur gæðinga, áhugamenn (veljið Annað 2. flokkur í Sportfeng)
- Ungmenni
- Unglingar
- Börn
- Tamningaflokkur – 5 vetra og yngri (veljið Annað/annað í Sportfeng)
Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina og/eða fella niður greinar og flokka náist ekki næg þátttaka.
Ath að ef greitt er með millifærslu (kt. 690672-0229, 0121-26-3873) þá verður að setja pöntunarnúmer sem tilvísun og senda póst á [email protected]
Ef greiðsla hefur ekki borist þá er keppandi ekki skráður á mótið. Komi upp vandamál við skráningu er hægt að hafa samband við Helgu Hildu í s. 848-1268 og Bjarna s. 866-005.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH