2012 verður ár fyrirmyndar reiðmennsku-

  • 9. nóvember 2011
  • Fréttir
2012 verður ár fyrirmyndar reiðmennsku-

FEIF ætlar að tileinka keppnisárið 2012 samstilltri fyrirmyndar reiðmennsku. Það er meðal þess sem ákveðið var á nefndarfundum alþjóðasamtakanna sem fóru fram í Hollandi daganna 28. – 30. október sl.

Knapar verði hvattir til að vanda reiðmennsku sína, og verða dómarar hvattir til að nýta sér aukið rými í dómskalanum til að hækka og draga frá í einkunn eftir því hvernig knapi sýnir hestinn.

„Við sáum að byrjað var að bera á þessu í dómum í HM, þar sem góð reiðmennska var réttilega verðlaunuð. Það hefur reyndar verið afar lengi í farvatninu að launa vandaða reiðmennsku, s.s. réttar gangskiptingar, réttan hraða og gott samspil milli knapa og hests, með hærri einkunnum. Á næsta keppnistímabili verður lögð veruleg áhersla á að knapar sýni þessa vandvirkni. Dómurum verður gefið rými til draga niður fyrir grófa reiðmennsku og verðlauna fyrir góða, veluppsetta og íþróttamannslega sýningu,“ segir Sigurður Sæmundsson, fulltrúi Íslands í íþróttanefnd FEIF.

Hann telur Íslendinga geta þar verið í forystu. „Okkur ber að taka þessu fagnandi. Við búum að góðum hestakosti og hér eru vandaðir knapar. Það er ekkert því til fyrirstöðu að við verðum leiðandi í þessari stefnumörkun,“ segir hann en nú þegar er farið að fylgja stefnunni eftir með endurhönnun á dómskerfinu og kynningu á henni meðal dómara.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link