Gullmótið: Arnór Dan og Háfeti efstir í unglingaflokki
Þá er forkeppni í fjórgangi unglinga lokið á Gullmótinu á Sörlastöðum. Arnór Dan Kristinsson og Háfeti frá Þingnesi sem eru efstir með einkunnina 6,13.
Önnur er Rebekka Rut Petersen á Prins frá Blönduósi með einkunnina 5,90 og þriðja er Bára Steinsdóttir á Spyrni frá Grund II.
Hér að neðan eru niðurstöður úr forkeppni:
1 Arnór Dan Kristinsson / Háfeti frá Þingnesi 6.13
2 Rebekka Rut Petersen / Prins frá Blönduósi 5.9
3 Bára Steinsdóttir / Spyrnir frá Grund II 5.7
4 Svanberg Óskarsson / Atlas frá Tjörn 5.13
5 Sigurjón Jónsson / Vísir frá Þóroddsstöðum 4.77
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH