FEIF Ásmundur Ernir og Hlökk efst á heimslista ársins í tölti T1

  • 4. október 2026
  • Fréttir

Ásmundur og Hlökk fagna sigri í tölti á Landsmóti. Ljósmynd: KollaGr

Sterk staða íslenskra knapa

Á vefsíðu FEIF er stöðulisti ársins (e. annual ranking) í tölti T1 aðgengilegur, en listinn byggir á árangri knapa og hests í forkeppni á alþjóðlegum mótum (WorldRanking). Þar eru tvær hæstu einkunnir parsins lagðar saman og meðaltal þeirra ræður röðuninni.

Efst á stöðulistanum að þessu sinni eru Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfði. Þau áttu frábært keppnistímabil og tróna á toppnum með glæsilega meðaleinkunn upp á 9,320 (fengu hæst 9,37 og 9,27 í forkeppnum).

Í öðru sæti eru Jóhann R. Skúlason og Evert fra Slippen með meðaleinkunnina 9,085. Jóhann sýnir enn og aftur ótrúlegan styrk á alþjóðavettvangi en hann á einnig annan hest inni á topp 20, Klassa fra Slippen, sem situr í 19. sæti með 7,920.

Þriðja sætið skipa þeir Jakob Svavar Sigurðsson og Skarpur frá Kýrholti með 8,850 í meðaleinkunn eftir stöðuga og öfluga frammistöðu á árinu.

Íslenskir knapar og hestar eru áberandi í efstu sætum listans. Í 4. og 5. sæti eru tvö hross frá Haukagili í Hvítársíðu: Flosi Ólafsson á Röðli frá Haukagili (8,485) og Brynja Kristinsdóttir á Sunnu frá Haukagili (8,480). Jóhanna Margrét Snorradóttir og Orri frá Sámsstöðum fylgja fast á hæla þeirra í 6. sæti með einkunnina 8,250.

Topp 10 á stöðulista FEIF í tölti T1:

Ásmundur Ernir Snorrason / Hlökk frá Strandarhöfði (IS) – 9,320 (9,37 ; 9,27)
Jóhann R. Skúlason / Evert fra Slippen (DK) – 9,085 (9,17 ; 9,00)
Jakob Svavar Sigurðsson / Skarpur frá Kýrholti (IS) – 8,850 (8,93 ; 8,77)
Flosi Ólafsson / Röðull frá Haukagili Hvítársíðu (IS) – 8,485 (8,77 ; 8,20)
Brynja Kristinsdóttir / Sunna frá Haukagili Hvítársíðu (IS) – 8,480 (8,63 ; 8,33)
Jóhanna Margrét Snorradóttir / Orri frá Sámsstöðum (IS) – 8,250 (8,37 ; 8,13)
Laura Midtgård / Gimsteinn frá Íbishóli (DK) – 8,230 (8,33 ; 8,13)
Iben Katrine Andersen / Gideon fra Tømmerby Kær (DK) – 8,170 (8,27 ; 8,07)
Jolly Schrenk / Aris von den Ruhrhöhen (DE) – 8,135 (8,20 ; 8,07)
Rasmus Møller Jensen / Röskur fra Skjød (DK) – 8,100 (8,13 ; 8,07)

Stöðulistann í heild sinni má nálgast á vef FEIF.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link