U21 Landsliðshópur Íslands
Sigvaldi Lárus Guðmundsson landsliðsþjálfari U21 landsliðs Íslands í hestaíþróttum hefur valið landsliðshóp sinn fyrir starfsárið 2026-2027. Hópurinn var kynntur í húsakynnum Icelandair Cargo við Flugvelli í Hafnarfirði.
„Þangað ætlum við með okkar allra sterkustu keppnispör. Einungis fimm sæti eru í boði á HM í ungmennaflokki þannig að baráttan um sæti á HM er hörð. U21-landsliðshópurinn er skipaður knöpum sem verða 17-21 árs á keppnisárinu 2027, yngstu knapar hópsins verða því á síðasta ári í unglingaflokki en aðrir knapar í ungmennaflokki,“ segir í tilkynningu frá LH
Að þessu sinni eru valdir 20 knapar sem þykja skara fram úr að mati landsliðsþjálfara og bjóða hesta í verkefnið. Ísland átti þrjá heimsmeistara í yngri flokkum á síðasta móti, Védísi Huld Sigurðardóttir, Jón Ársæl Bergmann og Kristján Árna Birgisson en þau eru öll komin í fullorðinsflokk á næsta ári.
„Rétt er að taka fram að knapar sem ekki eru valdir að þessu sinni eiga jafn mikinn möguleika og allir aðrir til að sanna sig á undirbúningstímabili sem og á komandi keppnistímabili til að ávinna sér sæti í landsliðshópnum og fara alla leið. Landsliðsþjálfari mun fylgjast grannt með stöðu mála og ekki hika við að bæta knöpum í hópinn þegar ástæða þykir til.“
U21-landsliðshópurinn er skipaður eftirfarandi 20 knöpum:
Apríl Björk Þórisdóttir, hestamannafélagið Sprettur
Dagur Sigurðarson, hestamannafélagið Geysir
Eik Elvarsdóttir, hestamannafélagið Geysir
Elísabet Líf Sigvaldadóttir, hestamannafélagið Geysir
Elsa Kristín Grétarsdóttir, hestamannafélagið Sleipnir
Elva Rún Jónsdóttir, hestamannafélagið Sprettur
Fanndís Helgadóttir, hestamannafélagið Sörli
Gabríel Liljendahl Friðfinnsson, hestamannafélagið Fákur
Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal, hestamannafélagið Þytur
Guðný Dís Jónsdóttir, hestamannafélagið Sprettur
Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir, hestamannafélagið Snæfellingur
Herdís Björg Jóhannsdóttir, hestamannafélagið Sprettur
Hjördís Halla Þórarinsdóttir, hestamannafélagið Skagfirðingur
Kolbrún Sif Snorradóttir, hestamannafélagið Sörli
Kristín Eir Holaker Hauksdóttir, hestamannafélagið Borgfirðingur
Lilja Rún Sigurjónsdóttir, hestamannafélagið Fákur
Loftur Breki Hauksson, hestamannafélagið Sleipnir
Matthías Sigurðsson,, hestamannafélagið Fákur
Ragnar Snær Viðarsson, hestamannafélagið Fákur
Sara Dís Snorradóttir, hestamannafélagið Sörli
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Uppskeruhátíð barna og unglinga hjá Fáki