Hestamannafélagið Fákur Uppskeruhátíð barna og unglinga hjá Fáki

  • 8. október 2026
  • Fréttir
Veittar voru viðurkenningar og verðlaunaðir þeir knapar sem stóðu í fremstu röð á keppnisárinu.

Uppskeruhátíð barna og unglinga var haldin í félagsheimili Fáks þann 1. október síðastliðinn þar sem veittar voru viðurkenningar og verðlaunaðir þeir knapar sem stóðu í fremstu röð á keppnisárinu.

„Knapar Fáks í barna og unglingaflokkum stóðu margir í fremstu röð á stórmótum ársins eins og Reykjavíkurmeistaramóti, Landsmóti og Íslandsmóti og var árangurinn eftirtektarverður. Eftirfarandi knapar eru titlahafar á Íslandsmóti og Landsmóti,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

  • Valdís Mist Eyjólfsdóttir – Íslandsmeistari í gæðingaflokki barna, tölti T3 og tölti T4.
  • Guðrún Lára Davíðsdóttir – Íslandsmeistari í gæðingatölti barna.
  • Oliver Sirén Matthíasson – Íslandsmeistari í fjórgangi V2 barna.
  • Gabríel Liljendahl Friðfinnsson – Landsmótssigurvegari í unglingaflokki

Allir knapar sem tóku þátt í fyrrgreindum stórmótum fengu viðurkenningar og þá fengu pollar einnig viðurkenningar fyrir þátttöku á árinu.

Um 100 manns mættu á hátíðina, ungir sem aldnir, og áttu skemmtilega kvöldstund saman. Leynigestur kvöldsins var Maron Birnir sem sló í gegn í lok kvöldsins.

Hægt er að sjá myndir frá hátíðinni HÉR

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link