Óvelkomin í ríki jökla

  • 10. október 2026
  • Fréttir

Eldingar á Kili. Ljósmyndir og myndskeið: Aníta Ólöf Jónsdóttir

Sjötíu og fimm stjórnlausir hestar á Kili

Í 24 ár hafa svokallaðar Útkalls-bækur verið á toppnum yfir mest seldu bækurnar á Íslandi. Hungur Íslendinga í lífsháskasögur virðist óseðjandi. Hvort það stafar af upprunanum, baráttu við veður og vosbúð eða bara sammannlegri spennufíkn, skal ósagt látið. Við hjá Eiðfaxa höfum ákveðið að róa á þessi spennumið og hefjum greinaröðina: Hestar og háski.

Kjalferð á vegum Hekluhesta

Leiðin sem farin var. Úr gagnagrunni www.ja.is

Fyrsta háskasagan hefst í Helgaskála á Hrunamannaafrétti. Hópur á vegum Hekluhesta tínir saman föggur sínar og selflytur um borð í hinn dökkgræna ’91 módel af Dodge Ram (Græna skrímslið). Fram undan er langur dagur að Fosslæk. Það er heitt í veðri, raunar svo heitt að knaparnir keppast við að fækka fötum og hestarnir fylgjast með, latir á svip. Við þriðja „jæja“ leggur hópurinn af stað, brosandi í bol, alls ómeðvitaður um hvað lúrir á milli jökla.

Hestarnir eru latrækir, óvanir slíkum hita. Hita og raka. Ferðamennirnir spyrja: „Er þetta ekki undarlegt íslenskt veður?“ Þetta er góður hópur, hver einasti knapi hefur áður ferðast með Hekluhestum og sérvalinn til þátttöku í ferð norður Kjöl – til allrar lukku.

Á meðan allt lék í lyndi

Ógnarhár svartur veggur

Á meðan hópurinn færist rólega í átt til næstu áningar mætir heitt og rakt láglendislofti ísköldu lofti á milli Hofsjökuls og Langjökuls. Kaldur fyrirboðinn léttir spor kláranna. Það er fátt sem getur stöðvað skriðið á 75 hesta rekstri. Hópurinn berst inn í ríki jökla en við fordyrið rís ógnarhár svartur veggur.

„Hvað er þetta?“ heyrist kallað úr hópnum. Starfsfólkið lítur ráðvillt hvert á annað. Eldingarnar teikna glitrandi línur í kolsvartan strigann og um stund dást knaparnir að listaverkinu. Þangað til þrumurnar skella á stóðinu.

Svarti veggurinn

Elding nokkra metra frá hópnum

Það drynur í loftinu á meðan jörðin hristist. Spennustigið í stóðinu magnast með hverri þrumunni sem ómar margfalt hærra í eyrum þeirra en þeim mennsku og þegar risastórri eldingu lýstur niður alveg við hlið stóðsins – fer allt af stað.
Þrumunni fylgir sá mesti hávaði sem knaparnir hafa nokkru sinni heyrt. Hún skekur þá að innan, hristir innyflin og skilur eftir sig ærandi suð í höfðinu.

Að missa stjórn á einum hesti er slæmt en 75 hestum tilfinnanlega verra

Fararstjórar, starfsfólk og ferðamenn fylgja stjórnlausum 75 hestum dýpra inn í svartan vegginn. Fararstjórar reyna að ná áttum og hugsa lausnamiðað. Á meðan hleypur stóðið eitthvert út í loftið – og ferðamennirnir fylgja ráðvilltir með og reyna að hanga á baki. Þannig líða nokkrar mínútur í fullkominni upplausn.

 

„Við verðum að hlaupa undan veðrinu og komast í skjól“, hugsar Aníta eigandi Hekluhesta. Þetta er jómfrúarferð hennar yfir Kjöl svo hún verður að treysta Sigurði í Hrólfsstaðahelli til að leiða þau úr auga stormsins. Hann veit um mögulegt skjól; Svínárnes við Bláfellsrætur. Á meðan heldur Aníta niðri í sér andanum og vonar að enginn detti af baki. Hún þakkar ekki síður fyrir að krakkaskottin hennar tvö hafi farið með bílnum þennan legginn.

Skjól í Svínárnesi

Knöpum tekst að beina rekstrinum á fullu stími í Svínárnes. Eftir að hafa komið stóðinu inn í gerði bjóða staðarhaldarar hópnum húsaskjól og hestunum hey. Þrátt fyrir það eru hrossin friðlaus og hlaupa í hringi í gerðinu á meðan knaparnir fylgjast skjálfandi með eldingaveðrinu ganga yfir.

Hópurinn bíður átekta fram á kvöld. Af eldingaveðrinu tekur við úrhellisrigning. Knaparnir líta hver á annan og velta fyrir sér hvort þeir komist yfir höfuð þessa tveggja, þriggja tíma leið sem eftir er í Fosslæk. Á meðan lallar „Græna skrímslið“ sér í hlað.

Ljósmynd: Aníta Ólöf Jónsdóttir

„Lognið“ á eftir storminum

Það rignir enn þegar hópurinn leggur loks upp frá Svínárnesi. Um miðnættið komast knapar loks í skála en þá tekur biðin eftir þurrum fötum við. Sá græni er ekkert að flýta sér, hefur barið íslenskt grjót í tuttugu ár og slæmur af ryðgigt eftir því. Andrúmsloftið í Fosslæk er þrungið tilfinningum sem sá einn þekkir sem sloppið hefur úr lífsháska.
En, á morgun er leiðin löng yfir í Gíslaskála. Það er því ekkert að gera annað en vakna eldsnemma og leggja af stað – enn dýpra inn milli jökla.

– Saga byggð á frásögn Anítu Ólafar Jónsdóttur, annars eiganda Hekluhesta.

______________________________________________________

„Ótrúlegt en satt held ég að flest úr hópnum hafi komið aftur og sum oftar en tvisvar, jafnvel þrisvar,“ segir Aníta undirritaðri þegar frásögninni lýkur. „Reynsla okkar er reyndar sú að þegar eitthvað svona gerist, eitthvað sem er skelfilegt á því augnabliki – en – allt fer vel, að þá kemur fólk aftur.“ Hún hugsar sig um stutta stund en bætir svo við: „Upplifunin verður svo sterk, það verða svo miklar tilfinningar; enn meiri gleði en líka bara dýpri tengsl við hestana við það að hafa komist í gegnum þetta saman. Já, og sjálfsagt við okkur líka.“

 

Átt þú háskalega sögu af hestum? Endilega sendu tölvupóst á [email protected]

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link