Aukin umsvif landsliðsins í vetur
Sigurbjörn Eiríksson í ræðustól við kynningu U-21 árs landsliðsins. Ljósmynd: Berglind Karlsdóttir
Landsliðsstarfið í hestaíþróttum verður með fleiri viðburði á komandi vetri en áður, en þetta fram kom í máli Sigurbjörns Eiríkssonar, formanns afreks- og landsliðsnefndar LH, við kynningu U21-landsliðshópsins í gærkvöldi.
Sigurbjörn greindi frá því að markvisst væri stefnt að því að færa starfsemi landsliðsins nær hestafólki um allt land. Liður í því verða sérstakar sýnikennslur á vegum landsliðsins sem haldnar verða á þremur stöðum á landinu á komandi vetri. Markmiðið með sýnikennslunum er að veita knöpum, þjálfurum og áhugafólki innsýn í faglegt starf og þjálfunaraðferðir landsliðsins, efla grasrótina og hvetja unga knapa til frekari afreka.
Þá verður stórviðburðurinn Allra sterkustu á sínum stað í vetrardagskránni, en viðburðurinn hefur skipað sér fastan sess sem ein helsta hátíð hestaíþróttanna þar sem landsliðsknapar og gæðingar þeirra keppa sín á milli auk annara uppákoma.
Sigurbjörn lagði áherslu á að með þessum viðburðum, sýnikennslunum og Allra sterkustu, væri verið að styrkja tengsl landsliðsins við hestasamtökin í heild og skapa öflugan grundvöll fyrir undirbúninginn fyrir stóru verkefnin sem fram undan eru.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Uppskeruhátíð barna og unglinga hjá Fáki
U21 Landsliðshópur Íslands