Glæsilegu Landsmóti 2011 lokið – vangaveltur
Hurð skall nærri hælum en veðurguðirnir snerust til varnar með hestamönnum. Útkoman varð glæsilegt mót sem flestir eru sáttir við…
Hestakostur mótsins stóð algerlega undir öllum væntingum sem fólk gerir til landsmóta en pyngja gesta og þátttakenda varð þó eitthvað léttari. Þessum aðilum fannst aðgangurinn, öll þjónusta og veitingar dýrar.
Nú þurfa hestamenn að leggjast undir feld, rísa þaðan aftur og ræða svo saman. Kortleggja þarf þennan viðburð til framtíðar, gera greiningu á því hvert sé hlutverk landamóta og hvernig hægt sé að búa þannig um að auðveldara verði að halda þau, hvernig hægt sé að lágmarka kostnað ræktenda og knapa og finna leið til þess að hámarka gestafjölda. Umræðan um staðsetningu landsmóta þarf að taka nýja stefnu, þrjóska þeirra sem langar að halda landsmót þarf að víkja fyrir hagsmunum hrossaræktarinnar, hrossanna og knapanna.
Hestamenn, brettum upp ermarnar og finna leiðirnar sem verða til framfara!
Trausti Þór Guðmundsson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH