Nýsjálendingar etja kappi á íslenskum hestum

  • 5. nóvember 2026
  • Utan úr heimi Fréttir

Árlegur reiðtúr Íslandshestafélagsins á Nýja-Sjálandi. Að þessu sinni á ströndinni nálægt Christchurch á Suðureyjunni. Myndir: Íslandshestafélagið á Nýja-Sjálandi.

Ísbrautar-áskorunin hefur hvatt hesta og knapa á nýliðnum vetri

Nýsjálendingar koma spengilegir út úr vetrinum eftir að hafa att kappi í Ísbrautar-áskoruninni.

Út úr vetrinum? Já, yfir Nýja-Sjálandi færir sólin út kvíarnar, gróður vaknar og nýtt líf boðar komu sína. Kíví-fuglinn (íslenska þýðingin er, haldið ykkur: snípustrútur) ráfar um í leit að maka og Hobbitar huga að garðinum. Það er vor í lofti og vorboðinn ljúfi er Last Christmas með Wham!

Íslandshestafélagið á Nýja-Sjálandi

Á Nýja-Sjálandi búa 60-70 manneskjur sem, þrátt fyrir að lifa hinum megin á hnettinum, hafa smitast af veikinni frægu; Íslandshestaveikinni. Þær eru þungt haldnar; ganga um í íslenskum lopapeysum í 25 stiga hita, hlusta á gjammið í íslenskum fjárhundum og flytja jafnvel hesta yfir hafið, 17.000 kílómetra, með ærnum tilkostnaði. Þessi lýsing á fullkomlega við um viðmælanda okkar, Jennie Boerema, formann Íslandshestafélagsins á Nýja-Sjálandi.

„Okkar aðalmarkmið í Íslandshestafélaginu er að kynna íslenska hestinn, standa vörð um hreinleika hans hér og halda til haga ættbók sem fullnægir kröfum FEIF og nýsjálenskra laga. Á síðasta ári varð svo Íslandshestafélagið í Nýja-Sjálandi fullgildur meðlimur í FEIF sem var mjög mikilvægur áfangi fyrir samfélagið okkar hér.“

Íslenskur hestur á Suðureyju Nýja-Sjálands með SUÐURLJÓSIN að baki sér. Mynd: Liz Brown.

Ástríða Jennie og félaga hjá Íslandshestafélaginu er botnlaus en það sama á við um vinnuna. Stórir þrígangshestar eru algengasta val knapa sem stunda helst dressúr, hindrunarstökk eða almennar útreiðar. Knapar sem velja sér minni hestgerðir taka þátt í viðburðum smáhesta-klúbba (e. pony club) og í þann félagsskap leitar hluti Íslandshestaeigenda. Þar finnast fjölbreytt námskeið, þá sérstaklega fyrir börn, en sýningar á þeirra vegum eru Íslendingum framandi. Spariklæddir keppendur með litríka hatta og slör skokka þar með gljáfægða hesta í taumi og uppskera umsagnir dómara, borða og verðlaun. Fyrir okkur hér á skerinu mætti helst líkja þessu við að allir sýnendur á hundasýningu hefðu skyndilega forfallast og brugðið á það ráð að láta brúðkaupsgesti úr nálægri veislu hlaupa í skarðið – nema í stað hunda væru hestar. En, nú er höfundur auðvitað komin á hálan ís og því viðeigandi að renna sér beint út á Ísbrautina.

Ísbrautar-áskorunin (e. Ice Trail Challenge)

Hver er Ísbrautaráskorunin og hvernig kom hún til?

„Við erum alltaf að reyna að finna leiðir til að efla Íslandshestamennskuna, halda hestum og knöpum í góðu standi og kynda undir metnaði þeirra yfir vetrartímann,“ útskýrir Jennie. „Það hægist á okkur yfir vetrarmánuðina, margir sleppa hrossunum út og þjálfa því lítið, byrja jafnvel ekki aftur fyrr en í september. Auðvitað eiga hrossin skilið að fá smá frí eftir annasamt sumar. En ef margir mánuðir líða án þjálfunar getur það leitt til heilsufarsvandræða, bæði fyrir hesta og knapa!“

Þessi staða er okkur kunnugleg þótt glíman við sykurinn, sólarljósið og ofeldið sé margföld á Nýja-Sjálandi.

„Svo þennan veturinn ákváðum við að breyta þessari áskorun í skemmtilega keppni. Keppnin hófst 21. júní og stóð til 21. september – yfir háveturinn hér á suðurhveli. Hugmyndin var einföld: Að fara út að þjálfa og sjá hvaða lið næðu að safna flestum kílómetrum! Við fórum rólega af stað með þrjú lið skráð til leiks ásamt einum kappsömum knapa sem tók þátt utan keppninnar en sá notast við hestvagn.“

Tvö liðanna höfðu aðsetur nálægt Auckland á Norðureyjunni en það þriðja í grennd við Christchurch á Suðureyjunni.

„Þátttakendur voru duglegir að deila myndum á samfélagsmiðlum okkar og gáfu þannig innsýn í þetta vetrarævintýri. Fljótt kom í ljós að það er keppnisskap í hópnum og þannig söfnuðust fleiri og fleiri kílómetrar í sarpinn. Við héldum svo utan um þetta með smáforritum, svo sem Equilab og HorseDay og niðurstöðurnar voru ansi magnaðar!“

Laura og Kendall rífa niður kílómetrana á Norðureyjunni.

Þannig endaði liðið í fyrsta sæti á að fara 242,5 kílómetra, liðið í öðru sæti 142,2 kílómetra og liðið í þriðja sæti 81.1 kílómetra. Þar af fór sigurvegari einstaklingskeppninnar 141,1 kílómetra á sínum hesti.

„Áskorunin reyndist hafa mjög hvetjandi áhrif. Hún kom knöpum út og á bak, hvatti þá til að kanna nærumhverfi sitt og, sem mest er um vert, hvatti fólk til að njóta þess að ríða út saman. Þetta var líka frábært tækifæri til að deila myndum, reynslusögum og stuðlaði þannig að meiri samheldni í okkar litla samfélagi, jafnvel þegar veðrið var leiðinlegt.“

Um vetrartímann getur skollið á með miklum rigningum, flóðum og ofsavindi ásamt snjóbyljum syðra. Alla jafna er þó stuttbuxnafært á Norðureyjunni sem hefur þó mögulega meira með eldheita stuttbuxnaást Nýsjálendinga að gera en hitastig.

„Á flestum stöðum finnast góðir staðir til að ríða út á. Sú staðreynd að keppni ýmis konar og starfsemi smáhesta-klúbba liggur niðri yfir vetrarmánuðina gerir það að verkum að knapar snúa sér að öðrum áhugamálum. Þetta leiðir af sér að þjálfunarstig hestanna lækkar og þeir fitna – stundum allt of mikið.“

Blásið verður til sambærilegrar keppni næsta vetur og vonast eftir að fleiri taki þátt.

Riðið heim frá ströndinni við Christchurch á Suðureyjunni.

„Þegar upp er staðið snýst þetta um að halda íslensku hestunum okkar í góðri þjálfun, heilbrigðum og í andlegu jafnvægi sem er alveg jafn mikilvægt yfir vetrarmánuðina eins og sumarið. Með stækkandi samfélagi, betri hestum og sterkari tengslum við FEIF ásamt óþrjótandi áhuga félagsmanna okkar er framtíðin björt. Og hver veit hversu mörgum kílómetrum við náum næsta vetur!“

Framtíð íslenska hestsins á Nýja-Sjálandi

„Í dag eru um 230 íslenskir hestar skráðir á Nýja-Sjálandi samkvæmt Worldfeng,“ segir Jennie. „Samfélagið okkar er lítið, en er hægt og rólega að koma undir sig fótunum með sína 60-70 meðlimi. Eitt er þó augljóst: Þegar fólk hefur uppgötvað íslenska hestinn dugar þeim sjaldnast bara einn! Margir meðlimir félagsins okkar eiga því nokkra hesta.“

Við könnumst við þá vegferð og þekkjum einn eða tvo sem finnst gaman að fjölga hrossum. Hér, á bakka uppsprettunnar sjálfrar, þarf þó ekki annað en halla sér fram og súpa á svo hjörðin stækki. Á Nýja-Sjálandi dugir aftur á móti enginn Lati-Geir, þar þarf einurð, útsjónarsemi, fjármagn og þekkingu. Til að Íslandshestamennskan verði ofan á þarf Íslandshestakeppni og þar liggur metnaður Jennie. Til að sá draumur verði að veruleika verða annars vegar ræktun hestanna og hins vegar færni knapanna að vera af nægum gæðum.

Brún hryssa nýkomin í heiminn nálægt Twizel á Suðureyjunni, á slóðum Erabor í kvikmyndunum um Hringadróttinssögu. Mynd: Liz Brown.

„Menntun er mikilvægur partur af hlutverki okkar hjá Íslandshestafélaginu. Við bjóðum félögum okkar að læra meira um ræktun, umhirðu og þjálfun íslenskra hesta. Einu sinni á ári erum við svo lánsöm að Silke Feuchthofen (reiðkennari og alþjóðlegur kynbótadómari) kemur hingað í frí og samtvinnar það nokkrum verkefnum. Félagar í Íslandshestafélaginu geta þá farið í reiðtíma, tekið þátt í keppnisdegi þar sem keppt er í Figure Test I og II [innskot undirritaðrar: eins konar töltfimi] og nokkrum hringvallargreinum ásamt því að fá mat á kynbótagripi. Hingað til hefur dómurinn byggt á unghrossamati FEIF þar sem notaður er línulegur dómskali. Allt er þetta í samræmi við kröfur FEIF og reglur en þó án formlegrar viðurkenningar.“

Félagið býður upp á þessa þjónustu frítt og ýtir þannig undir að meðlimir taki upplýstar ræktunarákvarðanir.

„Við höldum utan um öll gögn og erum þegar farin að sjá bætingu heilt yfir í hrossastofninum. Þá bætingu má auðvitað líka þakka, að minnsta kosti að hluta, nokkrum góðum ræktunargripum sem hafa verið fluttir inn síðustu ár og hafa nú þegar gefið af sér nokkur falleg afkvæmi.“

Tangó frá Skógarrönd er með hæsta kynbótamat íslenskra hesta á Nýja-Sjálandi. Tangó er undan Eldsdótturinni Rúmbu frá Skrúð sem flutt var til landsins fylfull eftir árs viðkomu í Danmörku. Faðirinn er heimsmeistarinn Gljátoppur frá Miðhrauni.

Innflutningurinn

Fyrstan má nefna fyrstu verðlauna stóðhestinn Hauk frá Stuðlum, Dynsson undan gæðingamóðurinni Þernu frá Arnarhóli, sem var fluttur til Ástralíu árið 2009. Blóð hans hefur borist þaðan yfir „Skurðinn“ eins og heimamenn kalla hafið sem skilur að þessi nágrannalönd. Árið 2018 var síðan fyrstu verðlauna stóðhesturinn Prins Valíant frá Þúfu í Kjós fluttur á Suðureyju Nýja-Sjálands og á nú þegar orðið 20 skráð afkvæmi þar í landi. Innflutningur á íslenskum hestum er þó enginn hægðarleikur og einna helst þar stendur hnífurinn í kúnni.

„Flutningskostnaðurinn einn frá meginlandi Evrópu er gríðarlegur og að flytja inn beint frá Íslandi er svo gott sem ómögulegt. Því miður er ekki til samningur um innflutning hrossa á milli Íslands og Nýja-Sjálands og slíkur samningur myndi gjörbreyta stöðunni. Við höfum reynt lengi að þrýsta á báðar ríkisstjórnir um samning, en án árangurs. Rödd svona lítils félags eins og okkar er því miður ekki nógu sterk.“

Folaldshryssa nálægt Twizel á Suðureyjunni. Ræktuð á hinu ástralska Haldane-búi líkt og víkingaskipið á bógnum ber vitni um. Mynd: Liz Brown.

Ástríðan fyrir íslenska hestinum er mikil á Nýja-Sjálandi og viljinn til að flytja þangað góða hesta, bæta þekkingu og stækka genamengið er til staðar. Fyrst og fremst vantar þó nýsjálenska knapa vel tamda og góða reiðhesta. Ísland er eitt fárra landa sem fullnægir (og rúmlega það) þeim ströngu kröfum sem Nýsjálendingar gera til heilbrigðis dýra og dýraafurða. Því má spyrja sig: Á hverju strandar?

Mætti ekki rétta Nýsjálendingum hjálparhönd og lengja þannig Ísbrautina alla leið til uppsprettunnar?

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link