Hrossaræktin 2026 – Ráðstefna

  • 5. nóvember 2026
  • Fréttir

Tilnefndir hrossaræktendur á ráðstefnu fagráðs árið 2024

Í beinni á EiðfaxaTV

Hin árlega hrossaræktarráðstefna fagráðs í hrossarækt fer fram í reiðhöll Spretts, laugardaginn 7. nóvember og byrjar klukkan 13:00. Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og allt áhugafólk um hrossarækt er hvatt til að mæta.

Sýnt verður beint frá ráðstefnunni á EiðfaxaTV.

Dagskrá hrossaræktarráðstefnunnar er eftirfarandi:

13:00 Setning – Ólafur Þórisson formaður fagráðs og deildar hrossabænda hjá Bændasamtökum Íslands
13:10 Hrossaræktarárið 2026 – Þorvaldur Kristjánsson
13:30 Heiðursverðlaunahryssur fyrir afkvæmi 2026 heiðraðar og afkvæmahestur
13:50 Verðlaunaveitingar:
-Verðlaun, knapi með hæstu hæfileikaeinkunn ársins (án áverka)
-Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins – Alhliða hross (aldursleiðrétt)
-Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins – Klárhross (aldursleiðrétt)
Kaffihlé
Hófar og heilbrigði:
• Áhrif hóflengdar á áhættuna á ágripum – Þorvaldur Kristjánsson
• Hófar og heilbrigði – Gestur Páll Júlíusson
15:30 Viðurkenningar fyrir tilnefnd ræktunarbú ársins 2026
Fundarslit um 16:15

Allir velkomnir!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link