„Alveg ótrúlegur tilfinningarússibani“
Safír og Jakob Svavar á Landsmóti í sumar. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir
Alls voru 63 stóðhestar sýndir í fullnaðardómi á Íslandi í ár í flokknum sjö vetra og eldri. Meðaltal aðaleinkunnar þeirra í hæsta dómi er 8,31 og hlutu 50 þeirra 8,00 eða hærra í aðaleinkunn og 1. verðlaun.
Hæst dæmdur í þessum aldursflokki er Safír frá Laugardælum með 9,13 í aðaleinkunn og er hann hæst dæmda kynbótahross allra tíma. Hann hlaut þann dóm á Landsmótinu í sumar þar sem hann stóð efstur í sínum aldursflokki. Hann hlaut 8,83 fyrir sköpulag með úrvalseinkunnina 9,5 fyrir samræmi og 9,0 fyrir höfuð, bak og lend og hófa. Fyrir hæfileika hlaut hann 9,28 með 9,5 fyrir tölt, skeið, samstarfsvilja og fegurð í reið og 9,0 fyrir brokk, greitt stökk, hægt stökk og hægt tölt. Sýnandi hans var Jakob Svavar Sigurðsson.

Safír og Jakob Svavar á Landsmóti í sumar. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir
Ræktandi hans er Malin Widarsson, en eigendur eru Anja Egger-Meier og Fákshólar ehf. Eiðfaxi hafði samband við Malin og í framhaldinu þau Jakob Svavar og Helgu Unu Björnsdóttur til að fræðast meira um þennan úrvalsgrip.
Heillaðist af Þráni á Landsmóti
Faðir Safírs er Þráinn frá Flagbjarnarholti og móðir er Skart frá Laugardælum. En hvernig kom sú pörun til hjá Malin og hvert var markmiðið?
„Ég ætlaði fyrst og fremst að búa til góðan hest fyrir mig. Ég horfði á Þráinn á Landsmóti árið 2018 og heillaðist af honum. Sýningin var svo kraftmikil og yfirveguð, samstarfsviljinn góður og hann virtist eiga svo létt með allt. Stroku-dæturnar Yppta og Skart og sérstaklega amma þeirra, Diljá frá Laugardælum, voru í miklu uppáhaldi hjá mér. Þegar Kristín Lárusdóttir var að sýna Skart á Landsmóti árið 2018 bauð Óli [Ólafur Þór Þórarinsson, maður Malinar] mér að halda henni og ég efaðist ekki um það að Þráinn yrði fyrir valinu,“ segir Malin.
Hugmyndin að baki nafninu Safír kemur frá nafngiftinni á móður hans. „Þegar hann kom í heiminn með sína fallegu stjörnu í enninu fannst mér að nafnið ætti að tengjast skart og gersemum. Svo eftir það hafa öll hans systkini líka fengið nafn því tengdu,“ bætir hún við.

Safír sem tryppi heima í haganum í Laugardælum
Einstakt geðslag
Í uppeldinu var hann yfirvegaður og vinalegur. „Einkenni hans var hversu spakur og vinalegur hann var alla tíð, kom alltaf til manns og heilsaði upp á mann í haganum þó hann væri talsvert í burtu frá manni. Þetta gerði hann líka þegar hann var ungur í hryssum hér heima í Laugardælum,“ útskýrir Malin.
„Hann var mjög fallegur veturgamall og gaf okkur strax ástæðu til að halda að hann yrði mjög góður. En ég held að ekkert okkar hafi haft hugmyndarflug í það að hann yrði svona góður. Tveggja vetra var hann hins vegar ekki nógu fallegur, en þar sem afkomendur Stroku, ömmu hans, hafa verið tíma að taka út þroska og vöxt var ákveðið að halda honum gröðum og sjá hvernig hann þróaðist.“
Í tamningu kom svo fljótlega í ljós að Safír byggi yfir einstöku geðslagi. „Hann var alveg frábær frá upphafi, svo rólegur og yfirvegaður. Það var ofboðslega gaman að vinna með hann. Einn af þeim allra auðveldustu sem ég hef byrjað á, með alveg einstakt geðslag. Eftir að búið var að setjast örfá skipti í hnakkinn hér heima fór hann að Syðri-Fljótum í „alvöru“ tamningu. Hann fékk svo smá vetrarfrí og fór svo aftur þangað. Mig langaði mikið til að eiga hann en ég er enginn keppnisknapi og graðhestur þarf að sýna sig og þannig komast á framfæri. Kristín Lárusdóttir sannfærði mig um það að fá dóm á hann strax 4. vetra svo ég gæti frekar ákveðið hvort ég ætti að eiga hann eða selja. Ákvörðunin um að selja hann var erfið en augljóslega rétt, betri sendiherra fyrir hrossaræktina hér í Laugardælum er ekki hægt að óska sér.“
Tilfinningarússibani
Safír var ein af stjörnum Landsmóts og var sýning Jakobs Svavars á honum stórkostleg, þar fór bæði saman hrifning áhorfenda og dómnefndar. „Við mættum ekki á mótið fyrr en á fimmtudegi, svo þegar Safír var í dómi á þriðjudeginum sátum við límd við skjáinn heima. Það var mikil spenna á bænum, Jakob og Helga Una voru búin að segja að þau vonuðust til að setja met á honum og það stóðst nú heldur betur. Það var nánast óraunverulegt að heyra tölurnar, alveg ótrúlegur tilfinningarússíbani.“

Verðlaunaafhending á Landsmóti í sumar. F.v. Ólafur Þórisson, formaður Búgreinadeildar hrossabænda, Will Covert, formaður íþróttanefndar FEIF, Ólafur Þór Þórarinsson og Malin Widarsson í Laugardælum, Helga Una Björnsdóttir, Anja Egger-Meier og Jakob Svavar Sigurðsson á baki Safírs. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir
Rólegur en krafmikill
Eins og áður hefur komið fram eru það þau Jakob Svavar Sigurðsson og Helga Una Björnsdóttir sem taka við hestinum eftir að hann kemst í þeirra eigu og Önju Egger-Meier.
„Safír kom hingað til okkar á 5. vetur, var þá orðinn vel taminn af Kristínu Lárusdóttur og strax orðinn góður hestur, þurfti bara að öðlast aðeins meira jafnvægi og styrk sem kom mjög hratt,“ segir Jakob Svavar um fyrstu kynni sín af honum. „Þennan vetur héldum við að þetta væri klárhestur, mamma hans var klárhryssa og svo bara rétt um vorið farið að athuga með skeið. Varla búið að prufa þetta á sýningunni og það var strax rosalega opið fyrir honum og alveg takthreint skeið. Hann þurfti bara aðeins að ná jafnvægi á því eins og öðru, lá við að væri aðeins of tvítakta. Svo strax þegar ég fór að eiga við það núna í fyrra var hann bara svona vakur.“
En hverjir telja þau Jakob og Helga að séu hans helstu kostir? „Léttleiki, geðslagið er frábært. Hann er svona óvenjulegur hestur því hann er ofboðslega rólegur en svakalega kraftmikill. Sem sagt bara alveg þægur og rólegur en svo er hægt að setja í hann orku þannig að hann sé alveg að springa en samt alltaf undir stjórn.“
Framtíðarmarkmiðin með Safír eru að hann verði keppnishestur en óhætt er að fullyrða að hann verði einnig upptekinn sem kynbótahestur: „Okkur langar að hann verði keppnishestur – verður áreiðanlega upptekinn sem kynbótahestur – en yrði gaman að hafa hann sem keppnishest. Næstu skref ekki alveg ákveðin en jú það er það sem okkur langar. Held að það liggi mjög opið fyrir honum. Fór vel af stað í fyrra og svo í raun liggja opnar fyrir honum margar greinar. Hann er samt auðvitað fyrst og fremst einstakur fimmgangshestur – engin gangtegund veikur hlekkur.“
10 hæst dæmdu 7. vetra og eldri stóðhestar ársins
- Safír frá Laugardælum – 9,13
- Agnar frá Margrétarhofi – 8,81
- Gauti frá Vöðlum – 8,79
- Aspar frá Hjarðartúni – 8,70
- Draupnir frá Kverk – 8,69
- Rúrik frá Halakoti – 8,69
- Baldvin frá Margrétarhofi – 8,69
- Sólstafur frá Bakkakoti – 8,69
- Platon frá Áskoti – 8,67
- Skuggi frá Sumarliðabæ – 8,67
Margareterhof er selt
Átta hlutu gullmerki LH
Suðurlandsdeildin áfram á EiðfaxaTV
Heim í hlað – Ný þáttaröð á EiðfaxaTV