Firmakeppni og folaldasýning á laugardag
Firmakeppni hestamannafélagsins Sóta verður haldið næsta laugardag 30. apríl á velli félagsins á Álftanesi.
Mótið er haldið í minningu fyrsta formanns hestamannafélagsins Sóta, Ársæls Gunnarssonar og eiginkonu hans Önnu Hafsteinsdóttur. Ársæll var formaður félagsins í 10 ár en í dag er sonur hans, Gunnar Karl, bæði formaður firmanefndar og formaður ræktunardeildar félagsins.
Dagskrá firmakeppninnar er eftirfarandi en mótið hefst kl. 12:
Pollaflokkur
Barnaflokkur
Unglingaflokkur
Ungmennaflokkur
Kvennaflokkur
Karlaflokkur
Sýna skal hægt tölt og yfirferðartölt samkvæmt stjórn þular.
Raðað verður í 5 efstu sætin í hverjum flokki og veitt verðlaun fyrir þrjú efstu eftir hvern flokk.
Skráning frá kl. 11 – 11.30 á laugardagsmorgun í félagshúsi Sóta.
Skrá skal nafn knapa og nafn og aldur hests.
Folaldasýning og kynbótamat
Eftir firmakeppnina fer fram folaldasýning. Veitt verða verðlaun fyrir efnilegustu folöldin. Sótafélögum gefst síðan færi á að koma með og fá mat á hryssur og stóðhesta, þar sem dómari mun gefa lauslegan byggingadóm og kynbótamat.
Skrá skal folöld og hesta í kynbótamat á sama tíma og stað og skráning í firmakeppni fer fram. Skráningargjald er 1.000 kr.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH