Danmörk Ræktunarbú og knapar ársins 2026 útnefnd í Danmörku

  • 24. nóvember 2026
  • Utan úr heimi Fréttir

Ljósmyndir: Danska Íslandshesta sambandið (DI)

Danska íslenska hestasambandið (DI) verðlaunaði félagsmenn 2026 á aðalfundi sínum

Danska íslenska hestasambandið (DI) veitti á dögunum sín árlegu verðlaun fyrir árið 2026 í tengslum við aðalfund sambandsins. Þar heiðruðu bæði ræktunarnefnd og íþróttanefnd þá knapa, ræktendur, sýnendur og hross sem skarað hafa fram úr á árinu, bæði á kynbótabrautinni og keppnisvellinum.

Jóhann Rúnar Skúlason og ræktunarbú hans, Stutteri Slippen, sópuðu að sér verðlaunum á ræktunarvængnum og var það valið ræktunarbú ársins, auk þess sem hross frá búinu hlutu titlana stóðhestur og hryssa ársins. Þá var Hlynur Pálsson valinn kynbótaknapi ársins. Í útnefndum knöpum ársins á keppnisvængnum voru það félagsmenn DI sem kusu á milli tilnefndra knapa og hlutu Ditte Sommer, Alberte Smith og Amanda Frandsen verðlaunin í ár.

Jóhann Rúnar Skúlason

Verðlaun ræktunarnefndar

Ræktunarnefndin veitti verðlaun í fimm flokkum fyrir framúrskarandi árangur í ræktun og kynbótasýningum á árinu.

Kynbótaknapi ársins 2026: Hlynur Pálsson
Þessi verðlaun hlýtur sá sýnandi sem nær hæsta meðaltali fimm efstu hrossa sinna á kynbótasýningum ársins, að teknu tilliti til aldurs hrossanna, auk þess sem horft er til þess að viðkomandi sé góð fyrirmynd.

Hlynur Pálsson hlaut titilinn eftir glæsilegt ár á sýningarbrautinni bæði í Danmörku og erlendis. Hrossin fimm sem lögðu grunninn að sigri hans eru öll frá ræktunarbúinu Lindholm Høje:

Mjölnir fra Lindholm Høje (8,50)
Ofélia fra Lindholm Høje (8,37)
Teitur fra Lindholm Høje (8,06)
Meistari fra Lindholm Høje (7,95)
Þokki fra Lindholm Høje (7,81)

Meðaltal þessara fimm hrossa, leiðrétt fyrir aldri, reyndist 8,38.

Hlynur Pálsson

Stóðhestur ársins: Evert fra Slippen
Verðlaunin hlýtur danskræktaður stóðhestur sem hefur vakið sérstaka athygli í ræktun eða keppni.
Evert fra Slippen, sem er ræktaður af og í eigu Jóhanns Rúnars Skúlasonar, hlaut titilinn í ár. Evert, sem er undan Hnokka frá Fellskoti og Líf fra Slippen, er dæmdur með 8,60 í aðaleinkunn sem klárhestur (9,02 án skeiðs). Á árinu hlaut hann 1. verðlaun fyrir afkvæmi með 15 dæmd afkvæmi og 125 stig í BLUP. Auk þess átti hann frábært keppnisár, keppti fyrir hönd danska landsliðsins, varð samanlagður Norðurlandameistari í fjórgangi og situr í einu af þremur efstu sætunum á heimslistanum í bæði T1 og V1.

Hryssa ársins: Líf fra Slippen
Verðlaunin hlýtur danskræktuð hryssa sem skarað hefur fram úr á árinu, annaðhvort sjálf eða í gegnum afkvæmi sín.
Líf fra Slippen (undan Garra frá Reykjavík og Andrá frá Skarði) er hryssa ársins 2026. Hún náði á árinu þeim merka áfanga að uppfylla skilyrði fyrir heiðursverðlaun FEIF fyrir afkvæmi, sem er æðsta alþjóðlega viðurkenning sem hryssa getur hlotið fyrir ræktunarárangur (lágmark 5 dæmd afkvæmi og 116 í BLUP). Meðal afkvæma hennar eru stóðhestur ársins, Evert fra Slippen, og Lögg fra Slippen, sem bæði unnu til verðlauna fyrir Danmörku á Norðurlandamótinu í ár.

Nýliði ársins á kynbótabrautinni: Rebecca Hesselbjerg Taulborg
Verðlaunin eru veitt knapa sem hefur sýnt færri en tíu hross í fullnaðardóm á ferlinum og sýnir eitt eða fleiri hross í Danmörku á árinu.
Rebecca Hesselbjerg Taulborg þreytti frumraun sína á kynbótabrautinni í ár og sýndi fjögur hross í fullnaðardóm með glæsilegum árangri:

Drakúla frá Akurgerði (7,97)
Tindra fra Kirstineholm (7,94)
Tóra fra Almindingen (7,89)
Depill fra Rødstenskær (7,81)

Meðaleinkunn hennar fyrir þessi fjögur hross var 7,90.

Ræktunarbú ársins: Stutteri Slippen
Verðlaunin eru veitt ræktanda sem hefur náð framúrskarandi árangri á kynbótasýningum og keppnisvellinum á árinu.

Stutteri Slippen (Jóhann Rúnar Skúlason) stóð uppi sem ræktunarbú ársins eftir einstakt ár. Það þykir einsdæmi að sami ræktandi fái á sama árinu bæði stóðhest og hryssu úr eigin ræktun með 1. verðlaun og heiðursverðlaun FEIF fyrir afkvæmi (Evert og Líf fra Slippen), auk þess sem Líf hlaut úrvalsviðurkenningu DI fyrir afkvæmi.
Auk þess átti búið hæst dæmdu fjögurra vetra hryssu ársins, Karen fra Slippen, og hæst dæmda sjö vetra stóðhestinn, Klassa fra Slippen – en bæði eru þau undan Köru fra Slippen, sem einnig er úr ræktun búsins. Á keppnisvellinum sköruðu hross frá Slippen einnig fram úr, þar sem Evert og Lögg fra Slippen fóru fremst í flokki á Norðurlandamótinu.

Knapar ársins 2026

Í aðdraganda aðalfundar gátu félagsmenn kosið á milli þriggja tilnefndra knapa í hverjum flokki, sem sérstök dómnefnd valdi út frá innsendum tilnefningum frá félagsmönnum og hestamannafélögum. Velferð hestsins og góðar fyrirmyndir vógu þungt í öllum flokkum.

Íþróttaknapi ársins (fullorðinsflokkur): Ditte Sommer Ditte Sommer var kjörin íþróttaknapi ársins í fullorðinsflokki. Í umsögnum um hana kemur fram að hún mæti jafnt mönnum sem hestum ætíð með hlýju og brosi, og að reiðmennska hennar einkennist af þolinmæði, mikilli virðingu og einlægum áhuga. Ditte þykir markviss, þrautseig og metnaðarfull en setur velferð hesta sinna alltaf í fyrsta sæti. Hún mætir bæði meðbyr og mótlæti af auðmýkt og vilja til að læra, og er sögð mikil fyrirmynd fyrir aðra knapa.

Gæðingaknapi ársins (fullorðinsflokkur): Alberte Smith
Alberte Smith hlaut titilinn gæðingaknapi ársins í fullorðinsflokki. Hún hlaut tilnefningu fyrir mikla hæfni, gott samstarf við hestana og djúpan skilning á þeim. Sérstaklega var tekið fram að Alberte ríði af mikilli tilfinningu fyrir þroska og þjálfunarstigi hvers hests, gefi þeim þann tíma sem þeir þurfa til að ná upp á hæsta stig og hafi velferð hestsins að leiðarljósi í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur.

Efnilegasti knapi ársins: Amanda Frandsen
Amanda Frandsen var valin efnilegasti knapi ársins í sterkri samkeppni við þær Gabrielle Steenfeldt-Johansen og Andrea Schmidt-Laursen. Amanda fær mikið lof fyrir að hafa þjálfað keppnishest sinn sjálf og náð frábærum árangri á alþjóðlegum mótum undanfarin ár. Þessum árangri hefur hún náð samhliða því að hlífa hestinum við ofálagi , meðal annars með því að hafa keppnistímabilið stutt og draga sig úr úrslitum ef of stuttur tími líður á milli keppnisgreina.

Alberte Smith og Amanda Fransen

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link