Hesturinn verður að vilja og skilja
Jakob Svavar og Hrefna frá Fákshólum. Íslandsmót 2026. Ljósmynd: Nicki Pfau.
Ég halla mér upp í vindinn, stika upp að íbúðarhúsinu í Fákshólum og sting mér inn í hlýjuna. Jakob Svavar býður mér kaffi og við tyllum okkur niður í glæsilegri stofu umkringd málverkum og verðlaunaplöttum. Ferillinn hófst ekki í gær og ekki í fyrradag heldur. Þetta gæti allt eins verið nóvemberdagur árið 2017 eða 2020, því enn á ný er það Jakob Svavar Sigurðsson sem er knapi ársins. Samt er hann eins og geymdur í formalíni. Aðeins lesgleraugun sem Helga Una réttir honum sanna að Jakob lýtur að einhverju leyti sömu lögmálum og við hin.
Árið sem líður er raunar lyginni líkast. Jakob sigraði B-flokk á Landsmóti á Kór frá Skálakoti, varð þar í 2. sæti í tölti á Skarpi frá Kýrholti og 5. sæti í A-flokki á Goða frá Bjarnarhöfn. Á Íslandsmóti gerði hann sér lítið fyrir og sigraði tölt og fjórgang á Skarpi, með 9,61 í einkunn í tölti! Þá innsiglaði hann þrennuna með sigri á Hrefnu frá Fákshólum í slaktaumatölti.

Jakob Svavar heiðraður á Uppskeruhátíð hestafólks. Ljósmynd: Oddrún Ýr Sigurðardóttir.
Gekk nánast allt upp í sumar
Hvernig líður þér? Ertu búinn að ná þér niður eftir helgina?
Jakob kímir. Það veður ekki á honum og ég þarf að draga upp stóru tangirnar.
„Þetta var bara gaman,“ svarar hann hógvær. Ég bíð róleg. „Jú, ég er stoltur af árangrinum í sumar, segi það alveg eins og er,“ kemur að lokum. „Auðvitað komu nokkrir aðrir vel til greina og maður er alltaf tilbúinn að samgleðjast þeim en það er gaman að fá viðurkenningar. Ef ég hefði unnið töltið á Landsmótinu hefði svo gott sem allt gengið upp í sumar. En ég er ekki svekktur yfir því.“
Þeir félagarnir, Jakob og Ásmundur Ernir Snorrason, hafa tekist á í tölti og fjórgangi síðustu ár. Þar hefur hver einasti áhorfandi skynjað þessa góðu blöndu af samkeppni og vináttu.
Árið hefur sannarlega verið magnað og sjálfsagt erfitt að velja hápunkt eða hvað?
Jakob verður hugsi. „Ætli hápunkturinn telji nokkuð í þessum verðlaunum en hann var samt líklega sýningin á Safír.“
Hér vísar Jakob til kynbótasýningarinnar á Safír frá Laugardælum þar sem heimsmetið féll og Safír hlaut aðaleinkunnina 9,13, þar af 9,28 fyrir hæfileika og 9,25 fyrir hæfileika án skeiðs. Sem sagt, ótrúlega jafnvígur alhliða gæðingur þar á ferð.
„Það sat alveg eftir. Keppnisfyrirkomulagið er svona yfirleitt í uppáhaldi en þetta augnablik á kynbótabrautinni var alveg sérstakt. Stemningin var einstök og sýningin heppnaðist svakalega vel. Ég er nú yfirleitt ekki með miklar yfirlýsingar en ég var þá þegar búinn að segja einhvers staðar að þetta væri besti hestur sem ég hefði kynnst. Og það var gaman að ná að sýna það.“

Safír frá Laugardælum og Jakob Svavar. LM2026. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir.
Skarpur töltir sína leið úr landi
Áttu þér einhverja uppáhalds grein?
„Ég hef lagt áherslu á að vera með góða töltara en það þýðir ekki endilega að töltið sé í meira uppáhaldi en annað. Fimmgangur er til dæmis svakalega skemmtileg grein og ég hef lítið verið í henni núna.“ Jakob hikar og ég sé einhvern glampa koma í augun. „A-flokkur á Landsmóti er ein af fáum greinum sem ég á eftir að vinna. Það er ofboðslega flott grein.“
Það bendir nú sitthvað til þess að Jakob þurfi ekki að mæta í A-flokk á kústskafti í nánustu framtíð, en ég held þeirri hugsun út af fyrir mig.
„Annars eru allar greinar skemmtilegar ef maður er með yfirburða hest. Það er miklu skemmtilegra að vera með frábæran fjórgangara í fremstu röð en góðan töltara og ganga sæmilega.“
Hvað er framundan?
„Það er bara svipað og áður. Skarpur fer til eigenda sinna í Danmörku á næsta ári. Stefnan er því að komast í landsliðshóp með hann, það er svona stóra markmiðið fyrir næsta ár. Svo er Hrefna á járnum áfram. Ég hugsa að ég noti hana jafnvel meira en ég hef gert í Meistaradeildinni. Svo á bara eftir að koma í ljós með Safír, hann er bara nýkominn inn aftur.“
Hvernig er þegar topphestarnir hverfa á braut og aðrir taka við, ertu þá búinn að undirbúa það í einhvern tíma?
„Maður hugsar það auðvitað, kannski sérstaklega með töltara sem tekur langan tíma að byggja upp. Maður byrjar þá kannski svolítið áður að undirbúa sig, annars get ég alveg líka setið hjá í einhverjum greinum,“ svarar hann og hlær. „En, jú, ég er alveg farinn að huga að uppbyggingu á nýjum töltara.“
Það verður spennandi að sjá hver tekur við keflinu af Skarpi enda stórt skarð að fylla.

Jakob Svavar og Skarpur frá Kýrholti. Íslandsmót 2026. Ljósmynd: Draumfaramyndataka, Gunnhildur Ýrr.
Pressan kemur úr óvæntri átt
Er gott að fara með svona árangur í farteskinu inn í nýtt ár eða fylgir því óþægileg pressa?
„Nei, pressan skiptir mig ekki máli, ekki að öðru leyti en því að ég verð eitthvað með sömu hesta og á þeim er alltaf einhver pressa. Ég er samt hættur að hugsa mikið um það, hlakka bara til. Pressan kemur bara frá keppinautunum. Maður er meðvitaður um hversu hörð samkeppnin er orðin og breiddin mikil en það er hvetjandi.“
Ég fæ kvíðahnút í magann af tilhugsuninni einni saman; að mæta aftur og aftur til leiks á þessu stóra sviði.
Pressan hlýtur að smjúga inn, einhvers staðar, eða hvað?
„Það getur alveg verið erfitt að vera sigurvegari,“ segir Jakob. „Það eru oft skiptar skoðanir, fólki finnst þessi betri en hinn og það finnst mér stundum aðeins erfitt. Maður vill auðvitað að sá besti vinni og nú þegar breiddin og gæðin eru orðin svona mikil þá getur þetta komið upp. Verkefni dómaranna er miklu erfiðara þegar margir eru mjög góðir en þegar einn er langbestur. Og nú reynir meira og meira á þá. Auðvitað getur maður sem sigurvegari sjaldan verið alveg óumdeildur, en maður vill vera réttmætur sigurvegari ef maður vinnur.“
Þessi orð dvelja aðeins hjá mér. Þetta er áhugaverð umræða sem oft hverfist um tilfinningar áhorfenda en er sjaldan út frá sjónarhorni knapans. Hvernig er að verða umdeildur sigurvegari? Auðvitað er það þyngra fyrir knapann en þann sem situr í brekkunni og þykir freklega á sér brotið.
Hverju ber að þakka?
Við snúum okkur að þökkunum. Auðvitað liggja óteljandi atriði að baki árangri sem þessum, en er eitthvað sem má draga sérstaklega fram?
„Það er auðvitað fólkið sem maður vinnur með. Góð aðstaða skiptir líka miklu máli. Og svo eru það eigendur hestanna sem treysta manni fyrir þeim hestum sem maður á ekki sjálfur. Það er lykilatriði að hafa góða samstarfsaðila sem hafa trú á verkefninu með manni. Þar hef ég verið mjög heppinn. En að lokum eru það auðvitað hestarnir sjálfir sem ber að þakka. Ég hef verið heppinn að fá að kynnast svona góðum hestum.“
Að baki ári eins og þessu liggur þrotlaus vinna ótal margra. Það má þó ekki gleyma að minnast á knapann sjálfan, þann sem heldur um taumana. Ég brýni tangirnar á nýjan leik. Leyfi mér að spyrja spurningar sem ég veit að verður erfitt að fá svar við.
Hvern telur þú vera þinn helsta styrk sem þjálfara og knapa?
„Ég veit það ekki. Ég vil ekki tiltaka neinn sérstakan styrkleika. Maður er náttúrlega búinn að vera lengi í þessu og þannig öðlast reynslu. Skemmtilegast finnst mér að geta gefið mér tíma til að þjálfa hestinn vel og undirbúa.“
Heppni með hest eða augnablik geta auðvitað stuðlað að velgengni en hún skilar ekki topp árangri árum eða áratugum saman, segi ég og held áfram að fiska.
„Eitt það mikilvægasta er að hafa trú á verkefninu, markmiðinu sem maður stefnir að,“ svarar Jakob. „Ef maður hefur þá trú ekki sjálfur þá verður það auðvitað ekki að veruleika.“

Jakob Svavar og Kór frá Skálakoti á LM 2026. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir.
Mestan áhuga á hestunum sem hann vinnur með sjálfur
Myndirðu segja að þú værir forfallinn hestaáhugamaður, hestasjúkur jafnvel?
„Það fylgjast alveg áreiðanlega margir betur með en ég, eitthvað sem ég gerði hérna áður. Þá kunni ég alla kynbótadóma utan að en núna kemur alveg fyrir að ég man ekki eftir hestum sem eru jafnvel hátt dæmdir. En ég hef ofboðslega mikinn áhuga á hestunum sem ég er að vinna með sjálfur, mér þykir rosalega vænt um þá og þeir skipta mig miklu máli.“
Þá vindum við okkur í þá, hestana. Hvað viltu segja okkur um þessi einstöku hross?
„Þau stóðu sig bara svakalega vel, Skarpur og Hrefna á Íslandsmótinu til dæmis. Mér fannst aðeins synd að þurfa að skilja Hrefnu eftir á Landsmótinu, þessari mestu hátíð okkar hestamanna. Mér fannst bara ekki ástæða til að fara með hana í B-flokk þar sem ég var með Kór eða í tölt þar sem ég var með Skarp. Það hefði auðvitað verið gaman að hafa hana þarna í sínum greinum [innskot: þar á Jakob við íþróttagreinum]. Ég vildi helst hafa stórmót annað hvort ár þar sem keppt er í gæðinga- og íþróttagreinum og svo hitt árið hafa aðskilda íþróttakeppni og gæðingakeppni. Bæði keppnisfyrirkomulög eru frábær og þau eiga að vinna saman.“

Jakob Svavar Íslandsmeistari á Hrefnu frá Fákshólum. Íslandsmót 2026. Ljósmynd: Draumfaramyndataka, Gunnhildur Ýrr.
Hin mestu hughrif
Mín óþrjótandi forvitni berst um og ég freistast til að spyrja auka spurningar.
Nú átt þú eflaust mörg augnablik í minningabankanum þar sem hestur hefur hreyft sérstaklega við þér. Er eitthvað svona eitt augnablik magnaðra hughrifa sem þú gætir nefnt?
„Þessi augnablik eiga sér stað þegar búið er að leggja ofboðslega mikið inn. Þetta gerist á hestum sem maður hefur unnið með lengi og lagt ómælda vinnu í. Ég reyni alltaf að leggja miklu meira inn en ég tek út, geri það kannski árum saman, svo kemur þetta eina augnablik þar sem maður biður hestinn um allt sem búið er að leggja inn fyrir. Þá kemur það manni oft á óvart hvað hann gefur ótrúlega af sér. Svona augnablik áttu sér stað í sumar og skiluðu þessum árangri.“
Ég melti þessi orð stuttlega. Hvort þarna leynist tvær hliðar á sama peningnum. Önnur er stór stund í lífi hests og knapa sem tilheyrir þeim einum. Hin eru hughrif okkar sem fáum að verða vitni að slíku augnabliki. Gæsahúð sem rennur niður bak okkar allra á sömu stundu og tengir okkur í sameinuðum hughrifum.
Við sitjum hugsi um stund.
„Það er þetta jafnvægi sem maður finnur fyrir og skilningi ábendinga,“ bætir Jakob við. „Maður finnur að hesturinn er tilbúinn til að ganga á fullum afköstum og það eina sem þarf er að biðja hann um það. En til þess þarf hesturinn að vilja það og skilja það.“
Við ljúkum þessu viðtali á þeim hugvekjandi orðum knapa ársins 2026 og óskum Jakobi Svavari Sigurðssyni til hamingju með enn eitt afburðaárið í keppni á íslenskum hestum.
Margareterhof er selt
„Gaman að geta tekið þátt í þessu frábæra starfi“
Dómarar klárir fyrir heimsmeistaramótið