Uppskeruhátíð Fáks 2010
Uppskeruhátíð Fáks verður haldin nk. laugardagskvöld og opnar félagsheimilið kl. 19:30…
Sigurbjörn Bárðarson er veislustjóri og að venju svignar veisluborðið undan kræsingum. Til að skemmta okkur kemur hinn síungi Ómar Ragnarsson og svo munu dívurnar í Gospelkórnum koma öllum í stuð með söng sínum. Afreksfólk Fáks verður heiðrað og dúndrandi diskó á eftir. Húsið opnar kl. 23:00 fyrir þá sem vilja koma á ballið með okkur (frítt inn, snyrtilegur klæðnaður).
Að venju er borðhaldið boðsball og eru þeir, sem hafa einhverja hluta vegna ekki fengið boðsmiða, beðnir að hafa samband við okkur í síma 898-8445 eða 696-8445 og láta okkur vita því að sjálfssögðu eru allir velkomnir sem hafa lagt hönd á plóg við félagsstarfið í Fáki á meðan húsrúm leyfir. Einnig viljum við minna alla þá sem fengu boðsmiða á að tilkynna okkur í emaili eða með því að hringja í 696-8445 hvort þeir ætla að mæta eður ei. Þeir sem eru búnir að láta okkur vita þökkum við fyrir og hlökkum til að eiga góða kvöldstund með ykkur á laugardagskvöldið.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH