Spáð í verðandi ræktunargripi

  • 18. febrúar 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Ræktunardagur hrossaræktarfélags Spretts haldinn hátíðlegur.

Ræktunardagur Hrossaræktarfélags Spretts fór fram 14. febrúar síðastliðinn.

Kristinn Hugason fyrrum hrossaræktarráðunautur dæmdi þar 28 hross. Alls mættu 25 hryssur og 3 stóðhestar sem allir fengu geldingardóm hjá Kristni með undir 8.00 í byggingardómi samkvæmt formanni hrossaræktarfélagsins. Hryssurnar voru í heildina með hærri forspá en oft áður þar af 15 yfir 8.00.

6 efstu hryssur voru eftirfarandi:

  • IS2008235821 Harpa frá Hæl.                  Eig. Ásta Snorradóttir  be. 8.38.
  • IS2011284175 Orka f. Fornusöndum.           Eig. Axel Geirsson   be. 8.35.
  • IS2009225556 Kría f. Álftanesi.  Eig. Steinunn Guðbjörnsdóttir be. 8.31.
  • IS2011287936 Gló f. Votumýri  Eig. Gunnar Már Þórðarson       be. 8.26.
  • IS2006255162 Þyrla f. Gröf 1.                Eig. Valka Jónsdóttir       be. 8.17.
  • IS2010288903 Rós f. Efstadal 2          Eig. Snæbjörn Sigurðsson be. 8.16.

Þorvaldur Kristjánsson ábyrgðarmaður Hrossaræktarsviðs RML hélt mjög fróðlegan fyrirlestur í hádeginu m.a. um skeiðgenin. Rúmlega 50 manns snæddu úrvalsgóða kjúklingasúpu  frá Mattthildi Kristjánsdóttur undir fyrirlestrinum.

Folaldasýning fór fram eftir hádegi, dómarar Þorvaldur Kristjánsson og Daníel Jónsson. Níu merfolöld og átta  hestfolöld mættu til leiks. Nokkur skráð komust eigi vegna veðurs. Í fyrsta sinn í sögu Hrossaræktarfélagsins fengu eigendur folalda í þrem efstu sætum i hvorum flokki,  folatoll í verðlaun hjá   stóðhestum í eigu félagsmanna að öllu eða litlu leiti.  Þeir félagar Þorvaldur og Daníel  höfðu næmt auga fyir hreyfingum og fasi folaldanna. Alltaf erfitt að dæma svona hóp einkum þar sem sum eru rökuð en önnur ekki.

Hryssur.

  • IS2014281842 Arðsemi f. Kelduholti. F: Arður f. Brautarholti, M: Gáta f. Hrafnsstöðum. Eigendur: Sigurður H. Ólafsson og Stella Kristinsdóttir.  Folatollur: Þór f. Votumýri IS 2008187937 gef: Gunnar Már Þórðarson og Kolbrún Björnsdóttir
  •  IS.2014281800 Pandóra f. Haga. F: Framherji f. Flagbjarnarholti M: Melkorka f. Hnjúki. Eigandi: Þórir Hannesson. Folatollur: Vökull f. Efri Brú. IS2009188691  Gef: Hafsteinn Jónsson.
  • IS2014225042 Hamingja f. Flekkudal. F: Hrói f. Flekkudal. M: Kotra f. Flekkudal. Eig: Guðný Ívarsdóttir. Folatollur:Þytur f. Neðra Seli  IS1999186987. Gef: Guðjón Árnason.

Hestar.

  • IS2014125048 Hrafn f. Flekkudal. F: Skugga-Sveinn f. Þjóðólfshaga 1, M: Björk f. Vindási. Eig: Sigurður Guðmundsson. Folatollur: Ljósvaki f. Valstrýtu IS2010180716. Gef: Guðjón Árnason.
  • IS2014188886 Strákur f. Laugarvatni. F: Lord f. Vatnsleysu M: Stör f. Saltvík. Eig: Guðmundur Birkir Þorkelsson. Folatollur: Kjarni f. Þjóðólfshaga IS20001812814. Gef: Hannes Hjartarson
  • IS2014187937 Már f. Votumýri F: Kiljan f Steinnesi M: Önn f. Ketilsstöðum Eig: Gunnar Már Þórðarson og Kolbrún Björnsdóttir. Folatollur: Galdur f. Reykjavík. IS2009125291. Gef: Hörður Jónsson og Sigríður Jónsdóttir.

Uppboð á folatollum fór fram á þorrablóti Hestamannafélagsins Spretts um kvöldið. Gleðigjafinn Þröstur 3000 sá um það og fórst vel úr hendi. Hroosaræktarfélag Spretts hafði ákveðið að láta tekjur af uppboði renna til framkvæmda við kynbótabrautir svæðisins fyrir væntanlega kynbótasýningu á Sprettssvæðinu 26-29 maí 2015. Boðnir voru upp tollar hjá: Arion f. Eystra Fróðholti, Krák f. Blesastöðum, Krók f. Ytra Dalsgerði, Óm f. Kvistum, Sæmundi f. Vesturkoti og Ölni f. Akranesi. Tekjur af þessu uppboði færði  félaginu rúma milljón til framkvæmda. Stjórn Hrossaræktarfélags Spretts þakkar eigendum/umsjónarmönnum þessarra hesta innilega fyrir framlagið. Þeir er: Ársæll Jónsson, Magnús Trausti Svavarsson  Kristinn Hugason, Ólafur Ásgeirsson, Finnur Ingólfsson og Reynir Örn Pálmason.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link