Fágætir folar
Ákveðinn uppgangur er í ræktun litföróttra hrossa en litamynstrið er eitt fágætasta afbrigðið í litaflóru íslenskra hrossa. Fyrir tilstilli og þrautseigju áhugamanna um litförótt hross og erfðabreidd í stofninum var komið í veg fyrir útrýmingu gensins. Kapp er lagt á að ná fram góðum litföróttum ræktunargripum til að stuðla að áframhaldandi tilveru litamynstursins hér á landi. Í dag er áætlað að um 1.100 litförótt hross séu lifandi í heiminum í dag. Innan við helmingur þeirra er á Íslandi. Þar af er 21 ógeltur foli. Flestir eru þeir ungfolar.
Í 4. tbl Eiðfaxa, Stóðhestablaðinu, má finna skrá yfir þessa fola.
Hægt er að gerast áskriftandi að Eiðfaxa í síma 511 6622 eða í gegnum tölvupóstfangið [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH