Ómur frá Kvistum hækkar
Þegar nýtt kynbótamat er skoðað hjá hestum sem hafa 118 stig og hærra með 15-49 dæmd afkvæmi raðast þeir eins og sést hér að neðan. Þetta eru lágmörkin sem þarf til 1.verðlauna fyrir afkvæmi hér á landi en á listanum eru allir hestar hér heima og utan landssteinanna.
Áfram er Kvistur efstur í alþjóðakynbótamatinu og styrkir stöðu sína um eitt stig frá síðasta útreikningi og er nú með 127 stig, en Kiljan sem var annar til 1.verðlauna fyrir afkvæmi á LM2014 lækkar um eitt stig í 120 stig. Hann er í átjánda sæti á listanum í alþjóðakynbótamatinu.
Af þeim hestum sem heiðrarðir voru í sumar hækkar Ómur frá Kvistum mest eða um þrjú stig, úr 118 stigum í 121 stig. Hann er í fimmtánda sæti á listanum í alþjóðakynbótamatinu.
Tíu efstur hestarnir eru allir fæddir á Íslandi en sex þeirra eru ná utan landssteinanna. Hæstur af hestum fæddum utan Íslands er Prins frá Knutshyttan með 122 stig í ellefta sæti listans.
IS2003156956 Kvistur frá Skagaströnd 127 IS 19 95%
IS2000187052 Trúr frá Auðsholtshjáleigu 126 NO 17 93%
IS1998187942 Lykill frá Blesastöðum 1A 125 DE 21 94%
IS2001137637 Arður frá Brautarholti 125 IS 37 97%
IS2002136610 Glotti frá Sveinatungu 125 IS 20 92%
IS2000157023 Ísar frá Keldudal 125 SE 37 95%
IS1999166214 Blær frá Torfunesi 124 IS 36 95%
IS1994188037 Hrafnfaxi frá Vestra-Geldingahol 123 SE 29 96%
IS1999135519 Aðall frá Nýjabæ 123 IS 35 96%
IS1996187723 Sjóli frá Dalbæ 122 DK 18 95%
SE2003102230 Prins från Knutshyttan 122 SE 16 93%
IS1997184211 Djáknar frá Hvammi 122 IS 20 94%
IS1993184613 Starri frá Hvítanesi 122 IS 26 94%
IS2001185028 Víðir frá Prestsbakka 121 IS 18 95%
IS2003181962 Ómur frá Kvistum 121 IS 24 94%
SE1990102766 Flipi från Österåker 121 SE 42 97%
IS1995184968 Jarl frá Miðkrika 120 NO 48 96%
IS2004156286 Kiljan frá Steinnesi 120 IS 16 94%
IS2003188470 Hnokki frá Fellskoti 120 IS 16 94%
IS1998137637 Akkur frá Brautarholti 119 IS 21 95%
IS2001135613 Glymur frá Innri-Skeljabrekku 119 IS 33 96%
IS2001187053 Gaumur frá Auðsholtshjáleigu 119 IS 45 97%
IS2000135815 Sólon frá Skáney 119 IS 34 96%
IS1995184720 Glitnir frá Strandarhöfði 119 DK 18 94%
IS1999165491 Hraunar frá Efri-Rauðalæk 118 DE 20 93%
IS1995184651 Víglundur frá Vestra-Fíflholti 118 IS 20 94%
IS1994156551 Dökkvi frá Mosfelli 118 DE 43 97%
SE1992104601 Frami från Häringe 118 SE 22 95%
IS2001187015 Dalvar frá Auðsholtshjáleigu 118 NL 15 93%
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH