Berbakt í sleppitúr
Íris Birna Gauksdóttir 9 ára í Herði Mosfellsbæ er enginn aukvisi í hestamennskunni eins og sést á þessum myndum sem teknar voru í sleppitúrnum þar sem hún fór ein , berbakt með 3 til reiðar í sumarhagann, ekki voru allir jafn þægir við hana á leiðinni en hún beit bara á jaxlinn og kláraði verkefnið. Íris Birna stefnir á að verða góður knapi og eignast góða hesta í framtíðinni en hér er hún á reiðhestinum sínum Neista frá Lyngási 8 vetra sem að er góð byrjun á hennar hestamennsku enda prúðmennskan uppmáluð.
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð
Styttu haustið með EiðfaxaTV