Hvinur frá Holtsmúla í Norska landsliðinu –
Norska meistaramótið í var haldið um helgina í Vestnes i Noregi og heppnaðist prýðilega en á mótinu var um leið valið landslið Noregs sem keppir á Norðurlandamótinu í Finnlandi seinna í sumar.
Í tölti varð hlutskörpust Gry Hagelund með Hrynjanda frá Fagereng og hlaut 8,00 í einkunn í úrslitum. Í fjórgangi var það Agnes Helga Helgadóttir sem sigraði á Gná frá Jacobsgarden með 7,43 en Gry og Hrynjandi voru í öðru sæti.
Fimmganginn vann svo Camilla Mood Havig með Herjann frá Lian. Ungmennaflokkurinn var ekki síður sterkur en þar var það enginn annar en Hvinur frá Holtsmúla sem var efstur í tölti í þeim flokki en knapi á honum er Elise Lundhaug.
Norska landsliðið var tilkynnt á laugardagskvöldið og má þar sjá ýmis þekkt nöfn í bland við nýja kandítata.
Nils Christian Larsen mætir með Rey frá Dalbæ þann sem hann reið til úrslita á síðasta HM, Camilla Mood Havig er með Herjan frá Lian sem er einnig HM hestur frá í fyrra. Stian Petersen er með nýjan hest sem heitir Léttir frá Hellesylt og verður spennandi að sjá hvað hann gerir með þennan nýja hest.
En það eru fleiri stjörnur því Hvinur frá Holtsmúla verður fulltrúi norska liðsins ásamt knapa sínum Elise Lundhaug sem keppa í ungmennaflokki og B-Moll frá Vindási sá sem Þorvaldur Árni var með á síðasta HM er einnig í norska liðinu en knapi á honum er Mari Soot Kristiansen. Það er greinilegt að norska liðið er til alls líklegt á Norðurlandamótinu. -hg
Landslið Noregs er skipað eftirtöldum knöpum og hestum:
Ungmenni
Guro Espeland – Zorro fra Grimssstôdum
Oda Ugland – Harekur fra Vindasi
Alexandra Jonassen – Raukur fra Austre
Elise Lundhaug – Hvinur fra Holtsmula
Cassandra Westlie – Erpur fra Brenno
Stine Helene Sørvåg – Ljosvaki fra Akureyri
Liv Runa Sigtryggsdottir – Svadilfari fra Bergkåsa
Thomas Larsen – Harry fra Stugudal (egen reserve Glettingur fra Krøigaard)
Til vara
Tonje Iren Keiserås – Heljar fra Kambi
Melinda Majer Ommundsen – Ari fra Ågreneset
Fullorðnir
Nils Christian Larsen – Reyr fra Dalbæ
Anne Stine Haugen – Kveikur fra Lian
Mari Soot Kristiansen – B-Moll fra Vindasi
Gry Hagelund – Hrynjandi fra Fagereng
Anine Lundh – Magni fra Stangarholti
An-Magritt Morset – Hvatur fra Hvitanesi
Agnes Helga Helgadottir – Gna fra Jakobsgården
Tina Kalmo Pedersen – Hrefna fra Ebru
Camilla Mood Havig – Herjann fra Lian
Stian Pedersen – Lettir fra Hellesylt
Anette Øverås – Brjann fa Stora Asi
Martin Rønnestad – Tigull fra Skaney
Hanne Smidesang – Vøkull fra Kopavogi
Tom Espen Venås – Tvistur fra Brædratungu
Til vara
Anita Nielsen – Valtyr fra Kirkjuæ
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH