Leiðin að mýkt og léttleika
Leiðin að mýkt og léttleika – Boðið verður uppá sýnikennslu fyrir almenning í reiðhöllinni í Borgarnesi sunnudaginn 6 apríl kl: 18. Þrír útskrifaðir reiðkennarar frá Háskólanum á Hólum munu sýna leiðina að mýkt og léttleika, þær Christina Mai, Sina Scholz og Sjöfn Sæmundsdóttir.
Hér fáum við að kynnast Sjöfn meira:
Sjöfn Sæmundsdóttir er fædd og uppalin í Lindarholti í Dölum. Hún hefur stundað hestamennsku frá blautu barnsbeini, byrjaði að stunda tamningar af alvöru á unglingsaldri, vann við tamningar á sumrin og meðfram skóla þess á milli. Árið 2005 hóf hún nám við Háskólann að Hólum í Hjaltadal. Var í verknámi hjá Olil Amble og Bergi Jónssyni á Selfossi og hóf svo störf hjá Gunnari Dungal og Þórdísi Öldu í Dallandi. Árið 2011 flutti hún til Noregs og vann þar við þjálfun og kennslu. Sjöfn útskrifaðist síðan vorið 2013 með reiðkennararéttindi C frá Hólaskóla. Hún starfar núna við tamningar og þjálfun í Þorlákshöfn og sinnir reiðkennslu samhliða. Þar er hún og kærasti hennar að byggja hesthús þar sem Sjöfn ætlar að opna reiðskóla.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH