Athugasemd við frétt

  • 28. júní 2013
  • Fréttir
Athugasemd við frétt

Vegna fréttar hér á vefnum vill RML að eftirfarandi komi fram varðandi gjaldtöku RML:

Flestir skrá orðið sín folöld sjálfir gegnum Feng í heimarétt – svo fremi að stóðhestaskýrslu/fyljunarvottorði hafi verið skilað á fangári. Gjaldtaka RML: 0 kr.

·         Ekkert er tekið fyrir skráningu á stóðhestaskýrslum/fyljunarvottorðum.

·         Með tilkomu heimaréttar eru folalda/afdrifaskýrslur eiginlega liðin tíð. Notandi heimaréttar getur alltaf skráð afdrif, sölur, folöld á fæðingarári o.s.frv. Kjósi menn hins vegar að fá þessa þjónustu og fá sendan pappír, sem svo er skilað til skráningar, þá er það meira en sjálfsagt; en þá gegn gjaldtöku.

·         Hross sem grunnskrást með skilum á örmerkingablöðum – þegar greidd skráning þegar merkingamaður kaupir merkingabók hjá BÍ. Ekkert auka þar heldur skráningargjald inni í verði merkingabókar.

·         Eigendaskipti geta menn framkvæmt í heimarétt sjálfir, sér að kostnaðarlausu. Berist eigendaskipti hins vegar á pappír til skráningar hjá ráðunaut þá er rukkað svo sem þú getur um.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link