Hulda og Kjuði komin með miða á HM

  • 17. júní 2011
  • Fréttir
Hulda og Kjuði komin með miða á HM

Hulda Gústafsdóttir og Kjuði frá Kirkjuferjuhjáleigu voru rétt í þessu að tryggja sér sæti á HM í Austurríki. Þau hlutu einkunnina 7,47 í seinni umferð á Gullmótinu í dag og eru því með meðaleinkunnina 7,49 út úr báðum umferðum.

Í öðru sæti á Gullmótinu er Eyjólfur Þorsteinsson á Hlekk frá Þingnesi með einkunnina 7,30 og þriðja er Olil Amble á Kraflari frá Ketilsstöðum með einkunnina 7,27.

Nú er matarhlé til kl. 13.30 en þá hefst keppni í fimmgangi ungmenna. Gullmennirnir hafa tendrað í grillinu og er svæðið umlukið steikarilmi og því um að gera að drífa sig á Sörlastaði.

Sex efstu keppendur mæta til úrslita á morgun. Hér að neðan eru niðurstöður úr fjórgangi.

Gullmótið
1    Hulda Gústafsdóttir / Kjuði frá Kirkjuferjuhjáleigu 7.47
2    Eyjólfur Þorsteinsson / Hlekkur frá Þingnesi 7.3
3    Olil Amble / Kraflar frá Ketilsstöðum 7.27
4    Berglind Ragnarsdóttir / Frakkur frá Laugavöllum 7.07
5    Viðar Ingólfsson / Stemma frá Holtsmúla 1 – 7
6    Sigurbjörn Bárðarson / Penni frá Glæsibæ 6.93
7    Snorri Dal / Gustur frá Stykkishólmi 6.9
8    Sylvía Sigurbjörnsdóttir / Þórir frá Hólum 6.8
9    Anna S. Valdemarsdóttir / Bárður frá Skíðbakka III 6.77
10    Ragnhildur Haraldsdóttir / Eitill frá Leysingjastöðum 6.57
11    Hrefna María Ómarsdóttir / Grímur frá Vakurstöðum 6.47
12-13    Saga Mellbin / Bárður frá Gili 6.4
12-13    Signý Ásta Guðmundsdóttir / Tvista frá Litla-Moshvoli 6.4
14    Hrefna Hallgrímsdóttir / Penni frá Sólheimum 5.77
15    Ásta Márusdóttir / Teinn frá Laugabóli 5.47
 
Úrtaka
1    Hulda Gústafsdóttir / Kjuði frá Kirkjuferjuhjáleigu            7,50            7,47            7,49
2   Olil Amble / Kraflar frá Ketilsstöðum            7,47            7,27            7,37
3    Anna S. Valdemarsdóttir / Bárður frá Skíðbakka III            6,77            6,77            6,77
4    Saga Mellbin / Bárður frá Gili            6,53            6,40            6,47
5   Eyjólfur Þorsteinsson / Ósk frá Þingnesi            7,27            0,00            3,64
6     Anna S. Valdemarsdóttir / Ásgrímur frá Meðalfelli            6,83            0,00            3,42

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link