Dagskrá Ís-landsmótsins á laugardag
Ís-landsmótið á Svínavatni verður haldið laugardaginn 28. febrúar og hefst stundvíslega klukkan 11 samkvæmt tilkynningu frá mótshöldurum. Mótið hefst á keppni í B-flokki, síðan kemur röðin að A-flokki og endað er á keppni tölti. Úrslit verða riðin strax á eftir hverri grein.
Skráningar eru tæplega 100. Ráslistar og aðrar upplýsingar og úrslit þegar þar að kemur eru birtar á heimasíðu mótsins is-landsmot.is.
„Gott hljóðkerfi og útvarpsútsending þar sem einkunnir verða kynntar jafnóðum.Veitingasala á staðnum, heitir drykkir, samlokur, pylsur o.fl. Posi. Einnig vönduð skrá með nánari upplýsingum. Vegna góðs stuðnings styrktaraðila mótsins, er aðgangur ókeypis og allir hvattir til að koma og njóta þessarar mestu gæðingaveislu ársins á svæðinu,“ segir í tilkynningu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH