Hesturinn hluti af alþjóðlegri landkynningu -Dagskrá Hestadaga í Reykjavík-
Landssamband hestamannafélaga, Icelandair, Iceland Travel, Höfuðborgarstofa stendur fyrir vikulangri hátíð helguð Íslenska hestinum, svokölluðum “Hestadögum í Reykjavík” (e. Icelandic Horse Festival) og er þessi stórviðburður hluti af landkynningunni Inspired by Iceland.
Eiðfaxi náði tali af Oddrúnu Ýr Sigurðardóttur, talsmann hátíðarinnar, sem sagði að viðburðurinn þjónaði sem alþjóðleg kynning á íslenska hestinum. Hún sagði einnig að lagt væri upp með fjölskylduvæna og fræðandi viðburði. Meðlimir hestamannafélaga á stór-höfuðborgarsvæðinu, Andvari, Fákur, Gustur, Hörður, Sóti og Sörli tæku virkan þátt í undirbúning hátíðardaganna, margir hverjir í sjálfboðastörfum.
Dagskrá Hestadaga í Reykjavík er uppfull af ótrúlega fjölbreyttum viðburðum: fræðsluferðir, kvikmyndsýningar, fyrirlestrar, litasýningar, hestaleikar, fagsýningar, teymingar undir Hafnfirskum skólabörnum! Hápunktur hátíðarinnar verður laugardaginn 2. apríl þegar skrúðreið, undirbúin af öllum fyrrnefndum hestamannafélögunum, verður farin upp Laugaveg að Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum þar sem við tekur stór fjölskylduhátíð.
Hér má líta á dagskrá Hestadaga í Reykjavík:
Mánudagur 28. mars
Kynbótaferð á Suðurland – Ræktunarbú ársins síðastliðin 3 ár, Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar, Strandarhjáleiga og Auðsholtshjáleiga, verða heimsótt. Ferðinni lýkur í Ingólfshöll, þar sem Ölfusingar munu standa fyrir sýningu.
Bíó Paradís sýnir hestamynd um kvöldið.
Þriðjudagur 29. mars
Kynbótaferð á Vesturland, þar sem ræktunarbú verða heimsótt, að Mið-Fossum verður kennslusýning í samvinnu við Landbúnaðarháskólan á Hvanneyri. Þá verða kynbótadómarar með fræðsluerindi og útskýringar á helstu atriðum kynbótadóma og ræktunar.
Bíó Paradís sýnir hestamynd um kvöldið.
Miðvikudagur 30. mars
Félag tamningamanna stendur fyrir kennsluýningu í reiðhöllinni Gusts.
Fimmtudagur 31. mars
Sýning og kynning á námi í Háskólanum á Hólum í reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ.
Um kvöldið stendur hestamannafélagið Hörður fyrir sölusýning með þjóðlegu ívafi í reiðhöllinni.
Föstudagur 1. apríl
Hátíðin færist til Hafnafjarðar. Þá munu leikskólar í Hafnafirði fá hesta í heimsókn, er það hluti af kynningu á sýningunni Æskan og hesturinn. Hestar og söngvarar mæta á Thorsplan kl. 16-18. Þá verður hópreið í lögreglufylgd upp Reykjavíkurveg að Fjarðarkaupum. Á bílastæði Fjarðarkaupa stendur hestamannafélagið Sörli svo fyrir Hestaleikum.
Um kvöldið verður sýning í reiðhöllinni í Víðidal. Þar verða atriði frá hverju hestamannafélagi fyrir sig auk þess sem unglingarnir úr sýningunni Æskan og hesturinn stíga á stokk.
Laugardagur 2. apríl
Lokadagur hátíðarinnar hefst á skrúðreið upp Laugarveginn. Öll hestamannafélögin taka þar höndum saman til að gera skrúðreiðina mikilfenglega, og er því búist við miklu sjónarspili.
Skrúðreiðin endar í Laugardal með stórri fjölskylduhátíð í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum milli kl. 13 – 16. Þar verður margt á boðstólnum s.s. hestateymingar, hesta- og handverksþorp þar sem ýmsar kynningar og varningur verður til sölu. Þá verður gangtegundasýning, sögusýning, litasýning og tónlistaratriði.
Á laugardagskvöldinu fer svo fram hin árlega ístöltskeppni „Þeir allra sterkustu” í Skautahöllinni í Laugardal. Þar mæta til leiks allra bestu knapar og hross landsins. Keppnin er allra jafna mjög spennandi og mikil upplifun fyrir áhorfendur.
Að auki
Einnig er rétt að minna einnig á viðburði sem fara fram 26. og 27. mars, eins konar undanfara Hestadaganna.
Annars vegar verður stórsýningin “Orri í 25 ár” í Ölfushöllinni laugardagskvöldið 26. mars þar sem farið verður yfir sögu og áhrif Orra frá Þúfu á íslenska hrossarækt. Reiknað er með að 60-80 hross út af Orra taki þátt í sýningunni, ásamt Orra sjálfum. Nánari upplýsingar má nálgast í frétt Eiðfaxa hér.
Þann 27. mars stendur hestamannafélagið Hörður í samstarfi við styrktarfélagið Líf fyrir opnu mót “Lífstöltinu” til styrktar Kvennadeild Landsspítalans. Mótið fer fram í reiðhöll Harðar og gefa allir sem standa að því vinnu sína. Aðgangseyrir og skráningargjöld verða frjáls og rennur óskipt til málefnisins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH