Telja sig svikna

  • 26. maí 2011
  • Fréttir
Klárhross á undanhaldi

Unnendur klárhrossa telja sig hafa verið svikna með síðustu breytingum á kynbótamatinu, en þá var vægi á geðslagið lækkað allnokkuð, meðal annars.

Frábær klárhross eiga nú síður möguleika á frábærri aðaleinkunn fyrir kosti en fyrir breytinguna, en þau nutu þess að einkunnir fyrir tölt, fegurð og geð héldust oft í hendur.

Nokkur frábær tölt- og klárhross hafa komið fram á kynbótasýningum í vor. Hæfileikaeinkunn þeirra kemur þó yfirleitt á óvart. Þrátt fyrir að vekja mikla hrifningu hjá áhorfendum, fá þau mörg hver ekki nema ríflega átta fyrir kosti, ef þau ná því. Ljóst er að mörg flott klárhross munu ekki ná einkunn inn á Landsmót.

Má þar nefna Ísafold frá Kirkjubæ, frábær og fögur klárhryssa sem allir vilja eiga með 8,19 fyrir kosti, Úlfhildur frá Blesastöðum 1a með 8,05 fyrir kosti, Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum með 8,14 fyrir kosti, Trausti frá Blesastöðum 1a, svo einhver séu nefnd.

Þykir mörgum að klárhrossin hafi verið gjaldfelld og kynbótamatið sé farið að vinna á móti búgreininni. En falleg tölt- og klárhross eru langeftirsóttustu hrossin og þau sem auðveldast er að selja.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link