Karlakór Kjalnesinga markaðssetur íslenska hestinn
Það er aldrei á vísan að róa hvaða tæki virka best í markaðssetningu. Hafliði Gíslason býr í Svíþjóð og rekur þar meðal annars hestaferðafyrirtækið Flygende Pass, sem sérhæfir sig í hestaferðum á Íslandi. Honum barst óvænt aðstoð heiman frá Fróni sem virkaði vel á sænska.
„Mér var bent á myndband á YouTube með Karlakór Kjalnesinga. Þeir syngja þar lagið Ríðum og ríðum við skemmtilegan undirleik. Í myndbandinu er hestamönnum á leið í Kjós fylgt eftir. Það er yndisleg stemmning í þessu myndbandi sem hrífur mann með sér. Við sendum öllum okkar viðskiptamönnum tölvupóst með tengli á myndbandið og það eru fjölmargar ferðir í sumar sem við getum tengt beint við þetta myndband. Ég hvet alla hestamenn til að setja „Like“ á myndbandið. Þetta er algjörlega sniðið til að vekja áhuga á Íslandi og íslenska hestinum,“ segir Hafliði. Sjá má myndbandið HÉR.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH