LH gefur út lágmörk fyrir Íslandsmót
Samkvæmt viðburðarskrá Landssambands Hestamannafélaga verður Íslandsmót fullorðinna haldið á Selfossi, af hestamannafélaginu Sleipni, dagana 14. – 16. júlí 2011. Íslandsmót yngri flokka verður haldið haldið viku seinna í Keflavík, af hestamannafélaginu Mána, dagana 22. – 24. júlí.
Skv. lögum og reglum LH ber keppnisnefnd að gefa út lágmörk fyrir Íslandsmót á hverju ári, 3 mánuðum fyrir Íslandsmót. Á heimasíðu LH segir að ákvörðun hafi verið tekin um að setja þau hálfum neðar en meistaraflokkslágmörk eru nú.
Lágmörkin eru sem hér segir:
Tölt T1 – 6,0
Fjórgangur V1 – 5,7
Fimmgangur F1 – 5,5
Tölt T2 – 5,7
Gæðingaskeið PP1 – 6,0
Fimi – 5,5
250 m skeið – 26 sekúndur
150 m skeið – 17 sekúndur
100 m skeið – 9 sekúndur
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH