100.000 krónur fyrir fyrsta sætið
Mótanefnd Fáks mun standa fyrir World Ranking keppni í Tölti T1 samhliða gæðingamóti/úrtöku hjá Fáki 26.-29. maí en í keppnina er 18 ára aldurstakmark.
„Gert er ráð fyrir að töltið fari fram laugardaginn 28. maí. Aðeins einn flokkur í boði þar sem einn knapi er inn á í einu. Vegleg peningaverðlaun verða í töltinu, fyrir 1. sætið kr. 100.000,- fyrir 2. sætið kr. 30.000,- og fyrir 3. sætið kr. 15.000,-. Svo það er til mikils að vinna. Skráð verður í töltið annað kvöld í Reiðhöll Fáks, milli kl. 20 og 22 og einnig í símum 567 0100 og 567 2166,“ segir í tilkynningu frá Fáki.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH