Erlendur auðmaður fjármagnar risahesthús í Húnaþingi
Breski auðkýfingurinn sir Richard George lánar fjármagn til byggingar um 2.500 fermetra reiðhallar og hesthúss í landi Lækjamóts í Víðidal í Húnaþingi vestra. Heimildir Viðskiptablaðsins herma að kostnaður við framkvæmdina nemi í kringum hálfan milljarð króna og verði hesthúsið með þeim flottari á landinu með stíum fyrir 31 hest. Ísólfur Líndal, hestamaður og reiðkennari, og fjölskylda hans að Lækjamóti stendur að framkvæmdunum. Þar verður sinnt hrossarækt og tamningum auk annars. Stefnt er að því að erlendir ferðamenn komi á Lækjamót í reiðkennslu.
Áætlanir gera ráð fyrir því að húsið verði fokhelt í haust og verði hægt að hefja rekstur í því í janúar á næsta ári.
Gullið í morgunkorninu
Auður Sir Richard George byggist á framleiðslu Weetabix, einu mest selda morgunkorni Breta. Afi hans hóf framleiðslu á því í Bretlandi árið 1932 og var sir George forstjóri Weetabix Limited þar til árið 2003 þegar hann seldi reksturinn til bandaríska sjóðsins Hicks Muse fyrir 642 milljónir punda, jafnvirði í kringum 77 milljarða íslenskra króna á meðalgengi þess tíma. Fjölskylda sir George framleiddi sömuleiðis Alpen-múslíið sem margir þekkja. Fleiri þekkt vörumerki voru sömuleiðis í eigu fjölskyldu auðmannsins, s.s. Weetos.
Breska dagblaðið Guardian sagði á sínum tíma, þ.e. undir lok árs 2003, að sir Richard George og fjölskylda hans hafi fengið 45 milljónir punda í reiðufé við söluna og ættingjar hans í George-fjölskyldunni og starfsfólk Weetabix deildu með sér afganginum.
Reiðkennarinn Ísólfur Líndal kynntist auðkýfingnum sir Richard George í gegnum reiðkennslu á Englandi.
„Þetta verður ekkert hallærislegt. En þarna á að fara vel um menn og hesta,“ segir Ísólfur Líndal, reiðkennari, tamningamaður og hrossabóndi. Framkvæmdir eru nú hafnar á byggingu reiðhallar í landi fjölskyldu hans á Lækjamóti í Víðidal í Húnaþingi vestra. Byrjað er að taka grunn að húsinu og stefnt að því að undirbúa fyrir járnabindingu í lok mánaðar. Vonast er til að hægt verði að nota húsið í janúar á næsta ári. „Ég er kominn með magnaða menn í framkvæmdir og held að þetta sé ekki alveg út í loftið,“ segir Ísólfur í samtali við vb.is. Í húsinu að Lækjamóti verður reiðkennsla, þjálfun og hrossarækt auk tækja og tóla fyrir endurhæfingu hesta.
Þegar húsið verður fullbúið og reksturinn kominn í gang er stefnt á að erlendir ferðamenn komi í reiðkennslu hjá Ísólfi, sem fram til þessa hefur ferðast heiminn þvert og endilagt í tengslum við störf sín.
„Þetta snýst um það að verða sjálfum okkur nóg og að við getum unnið heima hjá okkur. Þetta er full vinna fyrir tvo, okkur hjónin og strákana. Ég er búinn að ferðast gríðarlega mikið vegna kennslu undanfarin ár og djöflast út um allan heim. Planið er að minnka það mikið og að útlendingar, ýmsir fastakúnnar og aðrir nýir, komi í kennslu hjá mér,“ segir Ísólfur, sem var staddur á kynbótasýningu í nágrenni Flensborgar í Þýskalandi þegar vb.is ræddi við hann.
Fékk hjálp hjá breskum auðkýfingi
Eins og fram kom á vb.is í morgun lánar breski auðkýfingurinn sir Richard George Ísólfi og fjölskyldu hans fjármagn vegna byggingarinnar. Ísólfur fjármagnar bygginguna sömuleiðis með sölu á hrossum. Um lánið segir hann: „Þetta verður ekki á neinum bankavöxtum.“
Ísólfur kynntist sir George, sem er sestur í helgan stein, í gegnum reiðkennslu á Englandi. „Hann er mikill áhugamaður um hesta og íslenska náttúru,“ segir Ísólfur um auðkýfinginn.
frétt af www.vb.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH