Þórður mætir með Fláka og Árborgu

  • 11. desember 2012
  • Fréttir
Þórður mætir með Fláka og Árborgu

Heimsbikarmótið innanhús, World Toelt 2013, sem fer fram í Óðinsvéum í Danmörku dagana 22. og 23. febrúar nk. og hefur nú verið lokað fyrir skráningu á mótið.

Ljóst er að keppnin verður hörð í ár en 102 skráningar bárust á mótið og eru á meðal þátttakenda fjöldi glæstra hrossa og knapa. Sigurvegarar síðasta árs hafa boðað komu sína, Jóhann Skúlason ætlar sér greinilega að verja titilinn í tölti á Heimsmeistara Hnokka og Frauke Schenzel mætir með Tígul vom Kronshof

Þórður Þorgeirsson mætir til leiks með tvo nafntogaða gæðinga sem fóru frá Íslandi á árinu. Árborg frá Miðey mun efalaust bera sig vel í töltkeppninni enda ekki óvön innanhúsmótum á borð við Meistaradeildina þar sem hún var ávallt meðal efstu hrossa. Þá mun Þórður keppa á Fláka frá Blesastöðum 1A í fimmgangskeppni mótsins og Maxa frá Blesastöðum1A í slaktaumatölt og fjórgangskeppnina.

Þá má einnig sjá Ístöltsmeistarann Nátthrafn frá Dallandi á lista keppenda, en hann fór utan í vor og er nýr eigandi hans, hin sænska Ulrika Backan, skráð til leiks á honum í tölti.

Listi keppenda má nálgast hér.

Miðasala er hafin á World toelt og er boðið er upp á tilboðsverð á aðgöngumiðum í forsölu og er hægt að panta í gegnum netfangið [email protected].

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link