Áramót

  • 31. desember 2010
  • Fréttir
Áramót

Nú eru áramót framundan og á slaginu 00:00 opnast miklar gáttir eldhafs sem teygir sig til himins. Bæði börn og fullorðnir kunna vel að meta ljósadýrðina og eru sprengingarnar reyndar í gangi mest allan gamlársdag en ná hámarki á áðurnefndum tíma.
Dýrin eru hinsvegar ekki jafn hrifin af þessum gjörningi. Bæði stór og smá verða þau dauðhrædd, hundar og kettir hlaupa undir stóla og rúm, og hross sem eru á útreiðum eða útigangi taka til fóta sinna.
Eiðfaxi vill minna hesteigendur á að huga að hrossum á útigangi og er best að koma þeim í aðhald á meðan að ósköpin ganga yfir. Gott getur verið að hafa hjá þeim nóg hey, og jafnvel skilja dráttarvél eftir hjá þeim og hafa hana í gangi með öll ljós kveikt. Það getur gert það að verkum að hrossin taki ekki eins mikið eftir sprengingunum. Eins er gott að hafa ljós kveikt í hesthúsum, sérstaklega í þéttbýli og útvarp í gangi.
Hundum er gott að gefa róandi lyf, en þau fær maður hjá dýralæknum og metur hann magn lyfja eftir þyngd og stærð hundanna.
Eiðfaxi óskar öllum landsmönnum og bústofni farsældar  um áramótin og gleðilegs árs.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link