Mjölnir til Þýskalands
Stóðhesturinn Mjölnir frá Hlemmiskeiði 3 hefur verið seldur til Þýskalands.
Mjölnir er undan Kráki frá Blesastöðum 1A og Keilisdótturinni Bliku frá Nýjabæ. Hann var hæst dæmdi fjögurra vetra stóðhestur landsins árið 2009 og var í 5. Sæti í flokki stóðhesta 7 vetra og eldri á sl. landsmóti. Hann hefur hæst hlotið 8,50 í kynbótadómi og er hæst dæmda afkvæmi Kráks.
Fyrstu afkvæmi Mjölnis hérlendis eru nú komin á tamningaaldur og lofa þau afar góðu, að er fram kom í viðtali við ræktendur Mjölnis, hjónin Árna Svavarsson og Ingu Birnu Ingólfsdóttur í 6. Tbl. Eiðfaxa í haust. Verið er að temja þrjár hryssur undan honum að Hlemmiskeiði og einkennir þær allar heillandi útlit sem hann virðist gefa, ennfremur sem allur gangur virðist laus.
Nýjir eigendur Mjölnis eru eigendur hestamiðstöðvarinnar glæsilegu Der Wiesenhof og ríkir mikill gleði meðal nýrra eigenda er fram kemur í tilkynningu frá þeim en þau eru enn að jafna sig eftir fráfall eins af stólpahestum búsins, Gusti frá Grund, sem féll frá á dögunum, 24 vetra að aldri, sökum hrossasóttar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH