Efstu tveir hestarnir með sama tímann

  • 30. júní 2012
  • Fréttir
Efstu tveir hestarnir með sama tímann

Mikil spenna var í skeiðinu en efstu tveir hestarnir voru með sama tíma 7,57 en það voru þeir Sigurbjörn Bárðarson á Andra frá Lynghaga og Davíð Jónsson á Irpu frá Borgarnesi. Davíð bar sigur úr bítum en þar sem Andri lá bara annan sprettin hjá Sigurbirni hlaut Davíð fyrsta sætið. Til gamans má geta að Sigurbjörn sigraði bæði 250 m. og 150 m. skeið.

Þá var Sigríður Pjetursdóttir mætt á gamla gæðingnum Þyt frá Kálfhóli 2 en þau lentu í  2. sæti í A-flokki gæðinga á landsmóti á Hellu fyrir átta árum síðan. Þytur, sem er orðin 19 vetra gamall, hafði litlu gleymt og virtust þau hafa feykigaman af því að spretta úr sporunum.

Sigurður Sigurðarson mætti á hinni skjannahvítu Drift frá Hafsteinsstöðum en hún líkist óneitanlega systur sinni Drífu frá Hafsteinsstöðum sem er heimsmethafi í greinni. Heimsmetið er 7,18 sekúndur og var sett árið 2007. 

Skeið 100m (flugskeið):

1. Davíð Jónsson og Irpa frá Borgarnesi 8,03 – 7,57
2. Sigurbjörn Bárðarson og Andri frá Lynghaga 0,00 – 7,57
3. Eyjólfur Þorsteinsson og Spyrna frá Vindási 7,60      
4. Teitur Árnason og Korði frá Kanastöðum 7,62
5. Bjarni Bjarnason og Hera frá Þóroddsstöðum 7,68
6. Þórður Þorgeirsson og Ábóti frá Síðu 7,70
7. Sigríður Pjetursdóttir og Þytur frá Kálfhóli 2 7,72
8. Artemisia Bertus og Dynfari frá Steinnesi 7,75    
9. Hanna Rún Ingibergsdóttir og Birta frá Suður-Nýjabæ 7,79
10. Sigurður Óli Kristinsson og Arfur frá Ásmundarstöðum 7,85
11. Daníel Ingi Smárason og Hörður frá Reykjavík 7,93              
12. Sigurður Sigurðarson og Drift frá Hafsteinsstöðum 7,94
13. Elvar Þormarsson og Björt frá Bakkakoti 8,01
14. Snæbjörn Björnsson og Sinna frá Úlfljótsvatni 8,08
15. Sigurður Sæmundsson og Spori frá Holtsmúla 1 8,24
16. Ragnar Tómasson og Isabel frá Forsæti 0,00
16. Daníel Jónsson og Þöll frá Haga 0,00    
16. Ævar Örn Guðjónsson og Vaka frá Sjávarborg 0,00  
16. Birgitta Bjarnadóttir og Vatnar frá Gullberastöðum 0,00
16. Þórarinn Eymundsson og Bragur frá Bjarnastöðum 0,00 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link