Framkvæmdir fyrir LM2020 hafnar
Framkvæmdir fyrir Landsmót hestamanna sem haldið verður 6. – 12. júlí 2020 eru komnar á fullt skrið á Hellu. Verið er að laga til keppnisvelli, kynbótabrautir og umgjörð vallana. Stefnt er að því að framkvæmdum í þessari lotu verði lokið þann 12. maí n.k. Stefnt er á vinnudag einhvern næstu daga sem verður þá auglýstur á Facebook síðu Rangárhallarinnar.
Miðasala fyrir mótið er opin á www.landsmot.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH