Ræktunarbú keppnishrossa í Hestablaðinu
Magnús Svavarsson og Hólmríður Björnsdóttir á Blesastöðum 1a eru Ræktunarmenn keppnishrossa 2012. Verðlaunin eru veitt af LH. Hross frá búinu voru áberandi í fremstu röð á árinu og má þar nefna Ölfu sem er Landsmótsmeistari í tölti, Fláka albróður hennar, sem var í toppbaráttu í A flokki á LM2012, og Óskar, sem var í A úrslitum í tölti á Landsmóti og Íslandsmóti. Þá má nefna Kiljan frá Blesastöðum 1a, sem er í Noregi og er topphestur í tölti og fjórgangi, en tók þó ekki þátt í keppni þessi ári.
Lesið um Ræktunarbú keppnishrossa í Hestablaðinu. Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511-6622.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH