Álfur kominn með norskt ríkisfang
Stóðhesturinn Álfur frá Selfossi hefur nú fengið norkst ríkisfang. Eigandi hans, Christina Lund, fékk á sínum tíma að halda móður hans, Álfadísi frá Selfossi, undir hest í tamningalaun fyrir að temja og sýna Álfadísi, sem stóð önnur í 4 vetra flokki á LM2000 í Reykjavík og hefur skipað sér á fremsta bekk kynbótahryssna. Christina valdi Orra frá Þúfu til verksins. Álfur hlaut heiðursverðlaun og Sleipnisbikarinn fyrir afkvæmi á LM2012 í Reykjavík, aðeins 10 vetra, sem er einsdæmi. Hann á 413 skráð afkvæmi, þar af 62 fulldæmd. Aðaleinkunn kynbótamats er 124 og mest fær hann fyrir tölt (123), vilja (124) og fegurð í reið (133). Á myndinni eru Christina Lund á Álfi og Olil Amble, ræktandi hans, á Vestu frá Hellubæ. Haraldur Benediktsson, formaður BÍ, heldur á Sleipnisbikarnum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH