Stóðhestur á Austurvelli

  • 24. júní 2012
  • Fréttir
Stóðhestur á Austurvelli

Landsmót hestamanna er handan við hornið og af því tilefni minntu hestamenn á sig í blíðunni á Austurvelli í dag. Tamningamennirnir og þjálfararnir úr félagi tamningamanna, þeir Trausti Þór Guðmundsson og Þorvaldur Árni Þorvaldsson komu með glæsistóðhestinn tinnusvarta Svartni frá Miðsitju í bæinn og sýndu almenningi um hvað hestamennskan og reiðmennskan á íslenska hestinum snýst.

Trausti Þór útskýrði samband manns og hests, ýmsar æfingar til þjálfunar á hesti, útskýrði hvernig Svartnir brást við því sem Þorvaldur Árni bað hann um. Samspil þeirra Svartnis og Þorvaldar Árna var mjög flott og greinilegt að þeir ná vel saman og byggja sína samvinnu á trausti og umbun. Áhorfendur á Austurvelli nutu þess að horfa á fallega og vel útfærða sýnikennslu um leið og þeir nutu góða veðursins í borginni í dag.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link