Opið skeiðmót á Sauðárkróki

  • 18. september 2011
  • Fréttir
Opið skeiðmót á Sauðárkróki

Föstudaginn 23. september kl.16 heldur Skeiðfélagið Kjarval  opið skeiðmót á svæði hestamannafélags Léttfeta, Fluguskeiði á Sauðárkróki. 

Keppt verður í 150 og 250 metra skeiði úr básum með rafrænum tímatökubúnaði.   Peningaverðlaun eru á fljótustu hestana og öðlast þeir rétt til þáttöku á skeiðsýningu í reiðhöllini Svaðastöðum um kvöldið. Tekið er á móti skráningum á netfangið [email protected]. Skráningu lýkur 21. september klukkan 22:00. Skráningargjald er krónur 2.000 á fyrstu skráningu en 1.000 kr. eftir það. Við skráningu þarf að gefa upp kennitölu knapa og IS númer hests og grein.  Leggja skal skráningargjöld inn á reikning 0161-26-5709   kt. 570909-1340.

Nú þegar hafa nokkrir mjög fljótir hestar boðað komu sína.

Sölusýning verður strax eftir skeiðkappreiðarnar á Fluguskeiðsvelli.

Skeiðfélagið Kjarval.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link