Sörlamenn keppa í Trec þrautakeppni

  • 13. febrúar 2013
  • Fréttir
Sörlamenn keppa í Trec þrautakeppni

JENS EINARSSON:

Treck er alþjóðleg keppnisgrein í hestaíþróttum og er stunduð í fjölda landa á hrossum af fjölmörgum hestakynjum. Greinin er hugsuð fyrir hinn almenna hestamann. Hún felst í því að knapinn og hesturinn leysa saman þrautir sem kenna má flestum hrossum, án tillits til fegurðar og getu.

Fjögur ungmenni fóru á vegum Landssambands hestamannafélaga til Frakklands 2008 og tóku þátt í heimsmeistarakeppni í Trec undir handleiðslu Önnu Valdimarsdóttur. Þau stóðu sig öll prýðilega og það kom í ljós að keppnin hentar íslenska hestinum vel.

Starfshópur á vegum LH hefur fjallað um Trec keppnina undanfarin misseri og á Landsþingi LH kynnti formaður hópsins, Kristinn Skúlason, keppnina, lýsingu á henni og keppnisreglur. Tvær hestakonur í Sörla, Sigríður Eiríksdóttir og Lovísa Árnadóttir, hafa nú tekið sig til og þýtt hluta af leiðara og reglum Trec keppninar yfir á íslensku. Um helgina verður boðið upp á keppni í Treck þrautakeppni í Reiðhöllinni Sörlastöðum. Öllum er heimil þátttaka.

„Við sáum kynninguna á LH þinginu og okkur finnst keppnin mjög áhugaverð. Það eru margar þrautir sem hægt er að keppa í, en við ætlum aðeins að byrja með hluta þeirra að þessu sinni. Við rennum blint í sjóinn með þátttöku, en ef hún verður næg þá verður keppt í nokkrum flokkum; fyrir börn, unglinga og fullorðna. Við erum að leggja lokahönd á þýðinguna og vonandi getum við birt hana á vefnum á morgun,“ sagði Sigríður Eiríksdóttir í samtali við Eiðfaxa í dag.

Hér til hliðar á vefnum má sjá tilkynningu um Treck keppnina, tímasetningar og fleira.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link