Opið Íþróttamót Skugga
Haldið verður opið íþróttamót hjá Skugga í Borgarnesi laugardaginn 8.maí og hefst mótið kl.10:00. Keppt verður í tölti, fjórgangi, fimmgangi og 100m fljúgandi skeiði. Flokkaskiptingin er: börn, unglingar, ungmenni og fullorðnir.
Skráning fyrir kl 22:00 miðvikudaginn 5.maí hjá Reyni Magg [email protected] (8609014) eða Pálma Þór [email protected] (6920477).
Upplýsingar sem koma þurfa fram eru knapi, hestur, litur, aldur, IS-skráningarnúmer og hönd.
Skráningargjöld 2000 kr. Önnur skráning 1000.kr. Börn og unglingar 1000.kr.
Skráningargjöld þurfa leggjast inn á reikning 0326-13-004810. Kt:481079-0399 fyrir kl. 12:00 fimmtudaginn 6.maí. Kvittun sendist [email protected]
Mótanefnd Skugga
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH